Dásamlegur franskur lambakjötsréttur heitir á frummálinu Agneau aux Olives Vertes sem þýðist einfaldlega lambakjöt með grænum ólífum. Þessi franska uppskrift hefur sannarlega suðrænan blæ og íslenska lambakjötið fer einstaklega vel í réttinum. Við mælum með þessum. Stappaðar íslenskar kartöflur með rifnum parmesan fer vel með þessum rétti sem er fyrir 4-6.
1.2 kg lambalærissneiðar
200 g flesk, má nota beikon
1 msk. hveiti
1/2 dl olía
2 laukar, smátt skornir
2-3 hvítlauksrif, smátt skorin
750 g gulrætur, skornar í meðalstóra bita
3-5 dl hvítvín
2 dósir tómatmauk
2 tsk. tímían, 2 tsk. basil (best er að hafa ferskar jurtir)
4 lárviðarlauf
200 g grænar ólífur
75 g svartar ólífur
salt og svartur nýmalaður pipar
Sjóðið fleskið í vatni við vægan hita í 5 mínútur. Þurrkið það og takið pöruna af og skerið í þunnar sneiðar. Veltið lærissneiðunum upp úr hveitinu. Léttbrúnð það í pottinum, takið kjötið upp úr og setjið laukinn, hvítlaukinn, gulræturnar og fleskið í pottinn og skeikið saman í 5 mínútur. Bætið kjötinu út í ásamt hvítvíninu, tómatmauki og kryddi. Setjið lokið á pottinn og látið sjóða í eina og hálfa klukkustund. Bætið ólífunum út í í lok suðutímans og látið þær sjóða með í 10 mínútur. Kryddið með salti og pipar og smakkið réttinn til.
Kartöflustappa með parmesan:
400 g soðnar íslenskar kartöflur með hýði
1/2 dl ólífuolía
salt og pipar
rifinn parmesanostur eftir smekk
Stappið kartöflurnar saman og bætið olíu, salti, pipar og parmesanosti saman við. Hrærið létt saman og berið fram með lambakjötsréttinum.