Dýrðlegur þorskur bakaður í ofni

Þorskur er einhver allra besti matfiskur sem til er.  Hér er afar einföld uppskrift að ofnbökuðum þorski en þó einfaldleikinn ráði ríkjum er þetta afar gott.

4 þorskhnakkar um það bil 2,5 cm. að þykkt

salt og pipar

4 matskeiðar jómfrúarolía

1 bakki kirsuberjatómatar

1 sítróna í sneiðum

2 hvítlauksrif marin með hýði

2 greinar timian

2 msk smátt skorin steinselja

Hitið ofninn í um 180 gráður.  Þerrið þorskflökin, saltið og piprið eftir smekk.  Setjið olíu, tómata, sítrónusneiðar, hvítlauksrifin og timian í skál og látið standa smástund. Takið fram eldfast mót og hellið úr skálinni í fatið og leggið því næst þorskflökin í fatið. Bakið í ofni þangað til þorskurinn er hæfilega eldaður. Stráið steinseljunni yfir og berið fram með nýjum kartöflum og sítrónubátum.

Ritstjórn ágúst 2, 2019 07:39