The Independent birti nýverið grein eftir Amy Morin þar sem hún telur upp þau atriði sem einkenna andlega sterkt fólk. Hún segir að styrkurinn snúist fyrst og fremst um hugsanir, hegðun og tilfinningar og hann sjáist best í því sem þeir sterku geri EKKI. Amy Morin segir að Bill Gates sé sennilega dæmigerð manngerð fyrir andlega sterka manneskju enda farsæll maður. Hún nefnir líka Ophru Whinfrey í þessu samhengi. Og hér eru þessi atriði sem gaman er að hafa í huga:
1. Eyðir ekki tíma í að vorkenna sjálfu sér
2. Lætur ekki annað fólk draga úr sér kjark
3. Hræðist ekki breytingar
4. Reynir ekki að stjórna því sem ekki er hægt að stjórna
5. Hefur ekki áhyggjur af því að geðjast öllum
6. Er ekki hrætt við að taka meðvitaða áhættu
7. Dvelur ekki í fortíðinni
8. Gerir ekki sömu mistökin aftur og aftur
9. Tekur velgengni annarra ekki illa
10. Gefst ekki upp eftir fyrstu mistökin
11. Hræðist ekki að vera eitt með sjálfu sér
12. Finnst ekki eins og heimurinn skuldi þeim eitthvað
13. Býst ekki við árangri strax