Frjálst flæði í fjölbreyttri myndlist

Haustsýningu Grósku, félags myndlistarmanna í Garðabæ stendur nú yfir. Frjálst flæði í fjölbreyttri myndlist er í forgrunni á sýningunni þar sem sjá má verk úr pappamassa, skúlptúrara, höggmyndir, skálar og vasar úr tré, vatnslitamyndir, málverk í olíu og akrýl, teikningar og myndir unnar með ýmis konar blandaðri tækni svo fátt eitt sé nefnt.

Sýnendur eru meðlimir í Grósku en með þeim sýnir líka fjölhæfur gestalistamaður frá Grundarfirði, Lúðvík Karlsson Liston. Hann hefur unnið með grjót frá barnsaldri en notar auk þess málma og timbur og á veturna snýr hann sér stundum að maleríi. Úr efnunum mótast andlit, mynstur og form, tilhöggvin, samsett og endurmótuð eftir höfði listamannsins. Liston segist vera sjálfmenntaður og kallar sig alþýðulistamann.

Í Grósku er líka fjölskrúðugur hópur fagmenntaðra og sjálfmenntaðra myndlistarmanna en ein af hugsjónum félagsins er að allir fái að blómstra og njóta sín við listsköpun. Í fjölda ára hefur starfsemi Grósku skapað mikilvægan vettvang fyrir skapandi samneyti myndlistarmanna og eflt myndlistina og menningarlíf Garðabæjar. Gróska stendur að öllu jöfnu fyrir nokkrum myndlistarsýningum á ári, auk námskeiða og annarra viðburða.

Fólk er hvatt til að gera sér glaðan dag, göfga andann og njóta listar á Haustsýningu Grósku en sýningin er opin helgarnar 11.-12., 18.-19. og 25.-26. nóvember. kl. 13:30-17:30 og listamennirnir verða á staðnum.

Ritstjórn nóvember 9, 2023 20:04