Kistan og fleiri sögur eftir Ragnar Jónasson er athyglisvert smásagnasafn. Þetta eru 19 sögur sem allar hafa birst áður í erlendum tímaritum og smásagnasöfnun höfunda frá ýmsum löndum. Þetta er í fyrsta sinn sem þær koma út á íslensku en titilsagan var tilnefnd til Gullrýtingsins í Bretlandi.
Í þessum sögum er eitthvert andrúmsloft yfirvofandi ógnar ríkjandi og iðulega einhver óvæntur snúningur í lokin. Ragnar er áhugaverður höfundur og hann er einhvern veginn alltaf að kafa inn að innsta kjarna mannsins, kanna tilfinningalíf hans og hvernig aðstæður geta skapast þannig að allt fari úr böndunum. Hann er ekki hræddur við að dansa á mörkum hins dularfulla og skapa svolítinn hroll af og til. Það er eitthvað við tóninn í þessum sögum sem minnir á Ray Bradbury kannski spennan sem liggur í loftinu eða er undirliggjandi í bland við skilning á breiskleika mannanna og viðkvæmni þeirra í margvíslegum aðstæðum.
Kistan og fleiri sögur er skemmtileg bók og Ragnar Jónasson einn færasti glæpasagnahöfundur landsins. Hann er helst þekktur fyrir að byggja upp spennu með því að skapa flókna fléttu og lítið er um blóðugar senur eða hraða eltingaleiki um borg og bý en undir niðri brennur glóð sem verður að blússandi báli. Í smásögunum bregður hann upp trúverðugum svipmyndum af lífi fólks, stundum verulega átakanlegum, og niðurstaðan er alltaf rökrétt þótt ekki hafi verið hægt að sjá endinn fyrir. Þetta eru vel smíðaðar smásögur og skemmtilegt að fá tvær sögur í lokin sem Ragnar skrifar aðra í samstarfi við Yrsu Sigurðardóttur og hina í félagi við Víking Heiðar Ólafsson. Það er sérlega gaman að sjá tvo færa glæpasagnahöfunda leiða saman hesta sína og mjög áhugavert að fá píanóleikarann að takkaborðinu.
Ragnar hefur notið gífurlegrar velgengni erlendis og því kemur ekki á óvart að sögurnar hafi áður birst vítt og breitt um Evrópu. Hann hefur oft verið tilnefndur til ýmissa bókmenntaverðlauna, meðal annars Blóðdropans árið 2022 fyrir Reykjavík sem hann skrifaði í félagi við Katrínu Jakobsdóttur og hlotið Mistery Book of the Year-verðlaunin í Bretlandi fyrir Mistur, Palle Rosenkranz Prizen í Danmörku fyrir Dimmu, Drunga og Mistur.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







