Peysan í vinnslu

Mynstrið í peysunni sem ég sá á netinu og vissi ekki hvernig ég gæti nálgast.

Í viðtali sem tekið var við Gyðu Einarsdóttur og nefnist ,,Prjónaskapur og hugleiðsla“ nefndi ég að ég myndi leyfa lesendum að fylgjast með því þegar ég prjónaði mína fyrstu peysu. Ég var svo sniðug að fá Gyðu til að aðstoða mig við að útbúa uppskriftina að peysu sem ég hafði séð á netinu og nú er ég byrjuð. Ég þurfti að byrja nokkrum sinnum og finna ró þrátt fyrir að þurfa að rekja upp. Gyða leiddi mig áfram og í ljós er komin af stað byrjun á rosalega skemmtilegu verkefni. Það var alveg rétt hjá Gyðu þegar hún bar prjónaskap saman við hugleiðslu. Ég mæli sannarlega með þessari iðju og ætla svo að leyfa lesendum að fylgjast með framvindunni og setja inn mynd af afrakstrinum reglulega.

Sólveig Baldursdóttir, blaðamaður Lifðu núna skrifar.