Valkostir samtímans

Hendrikka Waage verður með pop-up sýningu sem hún nefnir Valkostir samtímans  í veitingastofum Hannesarholts dagana 17.-18.nóvember. Þar verða til sölu bæði málverk og prentverk sem hún hefur málað á þessu ári. Hendrikka er vel þekkt fyrir skartgripahönnun sína sem einkennist af fínlegum gripum. Fyrir nokkrum árum hóf hún að mála áleitnar myndir af kvenfígúrum sem hver á sinn hátt flytja boðskap um samtíma okkar og líf.

Í fréttatilkynningu segir um sýnguna: Í endalausu upplýsingastreymi nútímans býður Hendrikka Waage í ferðalag inn í heim sem hún kýs að nefna „Valkostir Samtímans“.  „Valkostir Samtímans“ gerir atlögu að skilningarvitum þínum, ögrar sjónarhorni þínu og hvetur þig til að sigla um margbreytileika stafrænnar aldar með skýrleika.

Á undanförnum árum hefur Hendrikka fengist við skartgripahönnun og myndlist sem endurspeglar upplifanir hennar af ólíkum menningarheimum þar sem hún skyggnist inn í nútíðina og veltir fyrir sér hvernig heimurinn þróast í framtíðinni. Sterkir litir einkenna þessa listsköpun og hún veltir fyrir sér valkostum, dómgreind og tilgangi á tímum upplýsingaáreitis.

„Konurnar með eitt eyra“ vekur upp margar spurningar t.d. mikilvægi þess að velja og hafna til að koma í veg fyrir að drukkna í upplýsingum sem við höfum ekki þörf á. Með því náum við að einbeita okkur að því sem skiptir í raun og veru máli í því ferðalagi sem að lífið færir okkur . Hávaðinn má ekki yfirtaka það sem í raun og veru skiptir okkur máli.

Listsköpun Hendrikku vísar í alþjóðlega reynslu hennar og búsetu á Íslandi, Japan, Rússlandi, Bandaríkjunum og Bretlandi.  Reynsla hennar og upplifanir í þessum ólíku menningarheimum sameinast í listsköpun hennar og vekur upp spurningar sem hver og einn/ein finnur merkingu í.“

Laugardaginn 18.nóvember kl.14-16 tekur Hendrikka á móti gestum og munu tónlistarmennirnir Doktor Viktor og Guðjón Böðvarsson sjá um tónlistarflutning.

Ritstjórn nóvember 16, 2023 13:36