Samtök aldraðra er félag sem hefur staðið fyrir byggingu íbúða fyrir eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 1973. Á þeim tíma hafa samtökin byggt 12 fjölbýlishús með rúmlega 440 íbúðum. Þau eru við Bólstaðarhlíð, Dalbraut, Sléttuveg, Akraland og Aflagranda í Reykjavík og Kópavogstún 2-4 í Kópavogi. Þessar íbúðir eru eingöngu seldar þeim sem eru í Samtökum aldraðra.
Nýjar íbúðir á næstu þremur árum
Samtökin eru nú að byggja fjölbýlishús með 22 íbúðum í Kópavogsgerði í Kópavogi. Þær verða tilbúnar í september 2016. Þá hafa þau fengið vilyrði fyrir lóð hjá Reykjavíkurborg til að byggja 50-60 íbúðir á „Kennaraskólareitnum“ sem liggur að húsum Samtakanna við Bólstaðarhlíð. Öll húsin koma til með að tengjast þjónustumiðstöð borgarinnar sem er á milli húsanna sem Samtökin létu reisa á níunda áratug síðustu aldar. Þar eru 65 íbúðir í tveimur fjölbýlishúsum. Ekki er búist við að nýju íbúðirnar verði tilbúnar fyrr en árið 2018.
Mismunandi verð eftir byggingarárinu
Allar íbúðirnar eru eignaríbúðir. Verð íbúðanna er mismunandi eftir því hvenær þær eru byggðar. Þannig kosta 35 til 43 fermetra einstaklingsíbúðir sem voru byggðar á tímabilinu 1984-2003 frá 15 milljónum króna og uppí 19. Tveggja herbergja íbúðir eru á 20-25 milljónir króna, en þriggja herbergja íbúðirnar kosta frá 27 milljónum og upp í 34. Nýrri íbúðirnar eru dýrari. Í nýjasta húsinu á Sléttuvegi 29-31 eru 58 rúmgóðar tveggja og þriggja herbergja íbúðir sem kosta á bilinu 30-38 milljónir króna. Þær eru allar með bílastæði í kjallara og búnar nútímaþægindum. Þá er líka lítill samkomusalur í húsinu. Í nýja húsinu í Kópavogsgerði er verð íbúðanna hærra, enda lóðaverð þar hátt.
Elstu félagar í SA hafa forgang
Íbúðirnar í eldri húsunum ganga kaupum og sölum, en eingöngu meðal þeirra sem eru í Samtökum aldraðra. Endursöluverð er upphaflegur byggingarkostnaður framreiknaður með byggingarvísitölu. Þegar íbúð er seld, er hún auglýst í nokkra daga í fréttabréfi Samtakanna. Menn geta boðið í hana, en á hana er sett ákveðið hámarksverð. Þeir sem hafa verið lengst í Samtökunum hafa forgang að því að kaupa og fá að ganga inní hæsta boð í íbúðina, hafi þeir ekki átt það sjálfir.
Ekki hægt að selja án aðkomu SA
Félagar í samtökum aldraðra eru á þriðja þúsund, ef allir eru taldir. Fólk þarf að vera orðið 50 ára til að ganga í þau. Samtökin hafa forkaupsrétt að íbúðum sem losna. Eigendur geta því ekki selt íbúðirnar á frjálsum markaði, nema stjórnin hafi áður hafnað forkaupsrétti.