Golfsigling er nýjung sem Icelandair VITA ferðir bjóða nú upp á. Vinsældir golfíþróttarinnar hefur sprungið út á síðustu árum þannig að örðugt hefur reynst að finna hótel fyrir alla þá sem vilja nýta fríin í golfi.
Sigling milli borga þar sem spilað er golf
Í stað þess að gista á einu hóteli og spila golf á sama stað í marga daga bjóða Icelandair VITA ferðir nú upp á golfferð þar sem dvalið er um borð í lúxus skemmtiferðaskipinu Costa Smeralda. Siglt er um Miðjarðarhafið með viðkomu í nokkrum borgum þar sem farið er í land og spilað golf á góðum völlum. Síðan er aðstaðan um borð nýtt þar sem nóg er um að vera þá daga sem ekki er spilað.
Ferðin hefst í Róm þangað sem flogið er með Icelandair og dvalið í tvær nætur á hótel Villa Pamphili og spilað á Olgiata golfvellinum.
Siglingin sjálf hefst siðan a þriðja degi. Frá Róm er siglt til Savona, þaðan til Marseille í Frakklandi, þá til Barcelona á Spáni og Mallorca og svo Sikiley og spilað golf í öllum borgunum. Ferðin endar síðan í Róm þar sem flugið er tekið heim til Íslands á ný.
Ferðirnar sem voru settar upp fyrir haustið reyndust vera geysilega vinsælar og seldust upp en ráðgert er að fara aftur haustið 2024 svo golfarar geta strax farið að hlakka til.