Golfið heltekur!

Margrét sveiflar kylfunni fagmannlega.

Það var ekki fyrr en 2011 sem hjónin Margrét Þorvaldsdóttir og Pétur Björnsson tóku sér golfkylfu í hönd og nú, tíu árum síðar, snýst líf þeirra mikið til um golf, en þó ekki alveg. Þau eru fædd 1955 og hafa fengist við ýmislegt um ævina eins og Íslendinga er siður. Hann er frá Raufarhöfn og hún frá Akureyri og leiðir þeirra lágu saman í MA. Hann fór svo í Stýrimannaskólann og hún í Kennaraskólann og svo tók lífið við.

Nú þegar að baki eru viðburðarík og gefandi ár kom golfið inn í líf þeirra eins og þruma og þau tóku það mál föstum tökum eins og annað. Þau ætluðu að kaupa einn golfhermi til að hafa á skrifstofunni hjá Pétri, sem staðsett er úti á Granda. Þau langaði til að geta nú æft sig þegar illa viðraði en sú hugmynd varð að golfhermasetri með 14 golfhermum. Setrið heitir Golfhöllin og er staðsett á Grandanum. Þar er ekki alltaf gott veður eins og Íslendingar vita en nú skiptir hins vegar ekki máli þótt rigni og blási. Nú geta áhugasamir nefnilega valið um 100 golfvelli víðs vegar um heiminn til að spila á og þar er alltaf gott veður og aðstæður fullkomnar.

Valið stóð um nýja konu eða fara í golf með Margréti

,,Ég prófaði fyrst að slá golfkúlu sumarið 2011 en Pétur tveimur árum síðar,” segir Margrét. ,,Það má segja að golfið hafi heltekið mig frá fyrsta höggi og þá var ekki aftur snúið. Maður er alltaf að keppa við að bæta sinn eigin

 árangur og keppnin er því fyrst og fremst við sjálfan sig þótt skemmtilegra sé að spila með fleirum. Maður er alltaf að vinna í eigin forgjöf sem er svo spennandi.”

Margrét segir að Pétur hafi verið heldur lengur í gang og hann bætir við: ,,Þetta var þannig að Margrét hvarf eitt sumarið og þá þurfti ég að taka ákvörðun um að fá mér nýja konu eða fara með Margréti í golfið,” segir Pétur og hlær. ,,Þar sem sambandið hafði reynst ágætlega í rúm 40 ár valdi ég seinni kostinn,” bætir Pétur við og er sáttur við þá ákvörðun sína.

Golfferð til Suður Afríku var afdrifarík

 

Pétur slær golfkúlu á einum æfingavellinum í Golfhöllinni.

2017 fóru Pétur og Margrét í golfferð til Suður Afríku þar sem þau kynntust öðrum golfhjónum, eða þeim Sigríði Björnsdóttur og Gunnlaugi Elsusyni. Þau eru mikið áhugafólk um golf og Gunnlaugur er PGA golfkennari. ,,Þannig vildi til að þau hjónin stóðu í flutningum í byrjun þessa árs og vantaði stað til að búa á í stuttan tíma og bjuggu þá hjá okkur í kjallaranum í mánuð,” segir Margrét. ,,Áður en þau fluttu út var hugmyndin fædd og búið að fjárfesta í húsnæði og kaupa fjórtán herma,” bætir Margrét við og ljóst er að þarna mættust kraftmiklir einstaklingar og til varð eitthvað skemmtilegt.

Úr fiskinum í golfið

Starfsferill Péturs byrjaði í tengslum við fisk en það gerðist þannig að hann fór að vinna fyrir breskt fyrirtæki sem sá um afgreiðslu og sölu á ísfiski fyrir íslensk fiskiskip sem sigldu með aflann til Englands. Pétur fékk fyrst vinnu hjá þeim sem túlkur og afgreiðslumaður fyrir skipin og áhafnir þeirra því þá vantaði mann sem kunni íslensku og ensku. Það varð vendipunktur í lífi hans og Margrétar. ,,Við fluttum út 1981 með tvö eldri börnin okkar og ætluðum að vera í tvö ár en þau urðu 16,” segja þau. ,,Við vorum búin að vera þar í fimm ár þegar við stofnuðum okkar eigið fyrirtæki sem heitir Ísberg Ltd. Sá rekstur gekk mjög vel.  1992 stofnuðum við svo fyrirtæki á Íslandi ásamt bróður mínum,” segir Pétur. ,,Það fyrirtæki fékk nafnið Ísfell og selur bæði efni til veiðarfæra og fullbúin veiðarfæri auk hífibúnaðar og margt fleira. Þetta var lítið fyrirtæki til að byrja með en nú eru starfsstöðvarnar orðnar 8 um allt land. ,,Ég seldi minn hlut í þessu fyrirtæki fyrir tveimur árum og notaði m.a. þann pening til að byggja upp Golfhöllina,” segir Pétur.

Eitt elsta húsið á Grandanum nú Golfhöll

Pétur segir að húsið sem þau keyptu á Grandanum fyrir Golfhöllina sé eitt fyrsta húsið sem reist var á uppfyllingunni sem nú myndar Grandann. Húsið var reist nokkrum útgerðarfyrirtækjum bæði til fiskverkunar svo og veiðarfæragerðar o.fl.  Það var til skamms tíma kennt við þá Aðalbjargarbræður sem voru þar með sína starfsemi í áratugi.

Setustofan mikilvæg

Margrét og Pétur í setustofunni þar sem hægt er m.a. að hitta aðra og horfa á golfþætti og -keppni á stórum skjá.

Mikið er lagt í góða setustofu í Golfhöllinni þar sem gestirnir geta sest niður fyrir og eftir golf, fengið sér hressingu og spjallað saman.  Þar er líka stórt sjónvarp og golfrásið oftast á!.

Margrét segir að Golfhöllin sé opin frá 9 til 23 svo þangað geti fólk komið til að hitta aðra þótt það ætli ekki endilega að spila.

Golfhöllin stendur fyrir golfnámskeiðum og kennslu fyrir öll getustig, mótahaldi og auðvitað leigu á golfhermum.

,,Hver hermir er leigður per klukkustund.  Það fer síðan eftir því hversu margir eru að spila saman hversu lengi leigan stendur.  Ef 4 spila saman þá passar að leigja herminn í 3 klukkustundir sem dugir í einn hring eða 18 holur, segir Margrét. Svo er hægt að vera meðlimur.  Meðlimir Golfhallarinnar njóta ýmissa vildarkjara en hugmyndin með aðild styður hugmyndafræðina um að byggja upp skemmtilegt samfélag yfir vetrartímann. Golfklúbbar hafa sýnt aðstöðunni mikinn áhuga því stóran hluta ársins er ekki hægt að nýta vellina hér á landi.

Ætluðu að fara að hægja á

Margrét segir að þau Pétur hafi verið farin að hugsa um að hægja svolítið á. ,,En það kemur alltaf eitthvað skemmtilegt upp í hendurnar á okkur og þá stökkvum við til,” segja þessi lifandi hjón sem nýta tækifærin sem gefast og lifa lífinu lifandi.

Sólveig Baldursdóttir, blaðamaður Lifðu núna, skrifar.

Ritstjórn nóvember 23, 2021 07:59