Sjúkdómarnir sem erfitt er að tala við lækninn um

Talið er að um það bil þriðjungur mannkyns upplifi einhvers konar andlega erfiðleika eða sjúkdóma á lífsleiðinni. Næstum jafnmargir þurfa að takast á við sjúkdóma í þörmum og mjög stór hópur fólks um allan heim er að berjast við kvilla og vanlíðan tengda kynfærum. Þótt þetta sé svona algengt eru þetta þeir sjúkdómar sem rannsóknir sýna að við eigum erfiðast með að leita okkur hjálpar við. Margir þjást árum saman fremur en að leita til læknis og fá bót meina sinna.

Mjög mismunandi er hversu auðvelt fólk á með að tala um slíka vandræðasjúkdóma. Sumir telja þetta eðlilegan hluta af lífinu og treysta að trúnaðarsambandið milli læknis og sjúklings haldi. Aðrir geta ekki einu sinni talað um þetta við maka sinn og reyna í lengstu lög að leyna vandanum. Afleiðingar þess eru að oft verða kvillar að sjúkdómum og fólk fær ekki meðferð við auðlæknanlegum kvillum.

Óttinn við að ræða málefni tengd kynfærasvæði, geðræna vanlíðan og vandamál í meltingarvegi eru tengd skömm og mun algengara að hann sé til staðar hjá eldra fólki en yngra. Margir voru aldir upp við að þetta talaði maður ekki um og kjósa þess vegna miklu frekar að þegja og vona að þetta lagist.

Sársauki, hægðavandmál og almenn vanlíðan

Þarmavandamál eru ákaflega sársaukafull og geta valdið umtalsverðri skerðingu á lífsgæðum. Samt tregðast mjög margir við að fara til læknis og leita sér hjálpar þegar þeir fara að finna slík einkenni. Þau eru helst kviðverkir, niðurgangur, harðlífi, blóð í hægðum, þreyta og hiti. Í flestum tilfellum er um að ræða bólgur í ristli eða skeifugörn. Glútenóþol getur valdið svipuðum einkennum.

Með hækkandi aldri þornar oft slímhúð líkamans með tilheyrandi óþægindum. Augnþurrkur, óþægindi frá slímhúð í nefi og kynfærasvæði eru mjög algeng viðbrögð við því. Flestum reynist auðvelt að leita sér hjálpar við augnþurrki og ertingu í slímhúð nefsins en fólk kýs stundum frekar að þola vanlíðan frá kynfærasvæðinu en að ræða það við lækna og þar með fá aðstoð við að bæta verulega úr.

Andleg vanlíðan getur komið upp hvenær sem er á ævinni og þróast út í alvarleg geðræn vandamál ef ekki er tekið á þeim. Aukið þunglyndi, kvíði og skapsveiflur eru einkenni sem fólk ætti að vera meðvitað um að leita sér hjálpar verði þeirra vart.

Auðvelt að meðhöndla

Suma þessara sjúkdóma sem erfitt er að tala um er auðvelt að meðhöndla, en aðrir eru krónískir menn þurfa að læra að lifa með þeim. Læknirinn getur engu að síður hjálpað viðkomandi að takast á við vanlíðanina sem honum fylgir og í mörgum tilfellum dregið verulega úr. Þyki þér erfitt að ræða um sjúkdóma og kvilla af þessum toga er gott að hafa í huga að læknum finnst oft erfitt að opna samtal um þá að fyrra bragði. Þeir hafa hugsanlega orðið fyrir því að sjúklingar bregðist ókvæða við og hika þess vegna við að spyrja um einkenni frá þörmum, hægðavandamál, andlega vanlíðan eða hvort allt sé í sóma í kynlífi sjúklings og kynfæri hans heilbrigð. Það er því mikilvægt að sjúklingurinn stígi fyrsta skrefið og opni leið að samtali um þessi forboðnu svæði. Andleg vanlíðan leiðir t.d. oft til aukinnar áfengisneyslu en sjúklingur skammast sín fyrir drykkjuna og dregur verulega úr hversu mikil hún er þegar læknirinn spyr en afleiðingar aukinnar drykkju er fljót að hafa áhrif á heilsufar þegar fólk er komið á efri ár.

Byrjaðu strax að tala um þetta

Þegar erfitt er að brydda upp á einhverju tilteknu umræðuefni eða ræða um kvilla sem hafa verið að hrjá fólk hefur það tilhneigingu til að geyma það þar til síðast og opnar sig ekki um þessi tabú fyrr en það er á leið út frá lækninum. Þetta gerir það að verkum að læknirinn er í vandræðum með að bregðast við. Hann veit að þessar upplýsingar kalla á nánari rannsókn og umræðu en hann er í tímaþröng og komið að næsta sjúklingi. Þá reynir hann iðulega að finna annan tíma til að sinna sjúklingnum betur en það getur virkað illa á sjúklinginn og gert það að verkum að vandi hans fær tíma til að þróast og verða að stærra vandamáli en ella. Gullna reglan er því talaðu um allt sem hrjáir þig við lækninn þinn þótt það sé óþægilegt og opnaðu umræðuna um það versta fyrst.