Sköpunin kemur úr trúnni, náttúrunni og eigin reynslu

Guðrún Erlingsdóttir er alin upp í Vestmannaeyjum og segir lífið þar og náttúruna hafa mótað sig. Hún ákvað 63 ára að gefa út vínylplötu og segir að tónlistin komi til sín en lögin hennar eru bæði trúarleg og veraldleg. Ferlið allt í kringum gerð hljómdisksins og vínylplötunnar einkenndist af gleði og krafti en eiginmaður Guðrúnar var hennar stuðningur, enda segir hún að hún hefði aldrei farið út í þetta stóra verkefni án hans. Útgáfutónleikar Guðrúnar verða á Goslokahátíð í Eldheimum í Eyjum nú á föstudaginn en miða má nálgast á tix.is.

„Ég byrjaði að semja lög fyrir um 15 árum, upp úr þurru og það kom engum eins mikið á óvart mér. En þegar ég var búin að semja fyrsta lagið fann ég einhverja þörf að ég ætti að koma þessu einhvern tíma út og ekki að geyma lögin ofan í skúffu.

Hafið, rokið og náttúran í Eyjum móta

Guðrún bjó í Eyjum í 50 ár. Hún upplifði gosið og það sem því fylgdi. Náttúran, nálægðin við náttúruöflin og hafið,  hefur haft mikil áhrif á hana ásamt tónlistarhefðinni sem er Eyjamönnum í  blóð borinn. „Eftir að ég flutti ég upp á land hef ég samið minna, sköpunarkrafturinn er í rokinu og sjónum í Eyjum. Mér fannst eins og ég væri að flytja til útlanda þegar ég flutti upp á land, ég vissi ekkert hvar ég átti að leita eftir þjónustu, eða kirkju. Ég fór í HÍ og útskrifaðist úr norsku og atvinnulífsfræði 53 ára. Þá hélt ég tónleika með öllum lögunum mínum og þýðingum á textum, en einn daginn fór ég að þýða gospeltexta. Ég fór í Ástjarnarkirkju og heillaðist af kórnum en honum stjórnaði Matthías V. Baldursson. Þetta var 2014 en þegar ég var komin í kórinn spurði ég Matthías hvort hann væri til í að vera með mér á tónleikum með lögunum mínum og hann tók því vel.

Guðrún byrjaði svo að þýða gospeltexta. „Við vorum einhvern tíma að syngja gospellög á ensku og þá kom einn kórmeðlimur til mín og spurði hvort ég gæti þýtt texta á íslensku, það væri svo leiðinlegt að syngja þetta á ensku. Ég sagði já, en hafði aldrei þýtt en það er oft flókið að þýða, það þarf að passa upp á að hvert atkvæði passi við hverja nótu. Sumir textar eru auðþýddir, aðra þarf nánast að semja upp á nýtt. Ég sendi þessa þýðingu á kórstjórann og hann varð þetta litla glaður því hann hafði verið að leita að þýðanda. Næstu árin þýddi ég tæplega 30 texta,“ segir Guðrún og brosir.

Guðrún og Gylfi

Tónlistin kemur til mín

„Ég hélt aftur tónleika undir stjórn Matthíasar 2022 en þá var ég sextug og fannst tilvalið að halda upp á það með tónleikum, hver gerir það ekki,“ segir Guðrún og hlær. „Í millitíðinni var ég að semja, ekki af því að ég gerði það meðvitað heldur af því að tónlistin bara kom. Þegar það gerist má ég bara gjöra svo vel að hætta því sem ég er að gera, grípa gítarinn og semja, tónlistin tekur yfir; ég fæ hana senda. Þetta eru mest lög sem eru trúarlegs eðlis og ég segi að þetta sé náðargjöf frá Guði. Ég hef haft kjark til að stíga á svið og sýna tónlistina mína og af því er ég stolt.

Guðrún  fór í annað háskólanám og kláraði meistaragráðu í blaða- og fréttamennsku 55 ára. Tíminn leið og Guðrún sem var í fullri vinnu auk þess að syngja í tveimur kórum. Rokkkór Íslands og Vox Gospel. Hún fann þó hvorki tíma né kjarkinn til að gefa út tónlistina.  „Ég var alltaf með það á bak við eyrað að gefa út lögin mín. En það ferli er flókið og sérstaklega fyrir þann sem hefur aldrei gefið út plötu eða geisladisk. Kannski vonaði ég innst inni að einhver myndi banka upp á og segja; ég skal gera þetta fyrir þig,“ segir hún.

Lagði fyrir í tónlistarsjóð 

„Það gerðist ekki og fyrir fimm árum fór ég  að leggja fyrir í tónlistarsjóð, allt sem kom inn aukalega, eins og það sem ég fékk fyrir skrif, fór í sjóðinn. Svo gerðist það að  Gugga Lísa sem er frábær tónlistarkona hafði sambandi við mig  hún var að gefa út plötu og langaði að hafa á henni lag eftir mig sem heitir Drottinn, ég tilbið þig. Ég gaf henni fullt leyfi til þess og að túlka það á sinn hátt og hún gerði þetta mjög fallega. Hún lét mig fá plötuna í nóvember og þá hugsaði ég; nú ferð þú af stað, það er enginn sem gerir þetta fyrir þig, það er annaðhvort núna eða ekki.

Ég strengi aldrei áramótaheit en skrifa oft niður það sem mig langar að gera og eitt af því var að ég ætlaði að gefa út plötu 2026. Í byrjun janúar tók ég ákvörðunina. Ég hafði tekið upp báða tónleikana mína og þó að hljóðið væri ekki gott þá átti ég demóið og útsetningarnar sem flestar eru eftir Matthías.. Ég sendi póst á Stúdíó Paradís sem er rekið af feðgunum Jóhanni Ásmundssyni og syni hans Ásmundi. Gugga Lísa hafði tekið sína plötu upp þar. „Soundið“ sem er á henni er það sem ég vildi hafa á minni plötu. Ég sendi öll lögin mín og textana seint að sunnudagskvöldi og eldsnemma morguninn eftir fékk ég svar: „Okkur líst vel á þetta og við tökum þetta“. Ég fór af stað þegar ég fékk svarið frá Paradís og fékk góða tónlistarmenn til liðs við mig. Þeir feðgar mixuðu og masteruðu plötuna í stúdíóinu.“

Guðrún segir að í sjávarplássi eins og Eyjum hafi fólk oft þurft að bregðast skjótt við t.d. til að nýta afla og segir að það hafi haft áhrif á sig og komið sér vel í öllu ferlinu við plötuna. „Ég tók þetta eins og eina góða sex mánaða vertíð. Ég vildi klára þetta allt fyrir vorið því mig langaði að vera með tónleika í Eldheimum á Goslokahátíð. Platan mín ber nafnið Sólarlag og er vísun í sólarlagið við Smáeyjarnar en það er hvergi fallegra en þar og sjálf hafði ég þetta útsýni í áraraðir. Titillagið heitir Sólarlag við smáeyjar. Sólarlag markar bæði upphaf og endi á degi. Ég er trúuð og trúi á Guð og ég veit að það er eitthvað gott til og það er líf eftir dauðann.“

Guðrún með plötuna Sólarlag.

Gamall draumur sem rættist

„Lögin voru gefin út á vínylplötu, geisladiski og stafrænt, sem er frekar nýlegt, þannig að það þýðir ekki fyrir fólk að segja, ég get ekki keypt því ég á ekki spilara,“ segir Guðrún glettin. „Vínylplata er allt öðruvísi en geisladiskur, það er eitthvað við það að sitja með plötuumslag í höndunum. Ég fékk með mér góða tónlistarmenn, feðgana í Paradís; Sigurgeir Sigmundsson, gítarleikara og Arnór Vilbergsson, organista í Keflavík. Við byrjuðum 18. janúar að taka upp og lukum tökum 27. mars sem er svakalegur hraði. Þetta var vel skipulagt og hálfgerð sprengja. Vínylmasterinn var sendur frá Stúdíó Paradís til  Þýskalands sem gerði master-plötu og svokallaða negatívu sem var send til RPM records í Danmörku einn af eigendunum er Íslendingur. Ég fékk ég frábæra söngvara sem hafa sungið með mér í ýmsum kórum til að syngja á Sólarlagi. Síðasta lagið á plötunni er jólalag  sem ég setti á Spotify 2021 sem Helga Möller syngur og lagið sem Gugga Lísa söng á sinni plötu fór líka á Sólarlag.

Ég lagði mikið upp úr plötuumslaginu þannig að ég hringdi í dóttur mína  Bjarteyju sem er listamaður og bað hana að mála fyrir mig verk af  sólarlagi við Smáeyjar sem er titillag plötunnar. Tengdasonur minn sem er grafískur hönnuður sá um art-verkið á plötunni. Önnur dóttir mín Jóhanna Björk syngur með mér eitt lag á á plötunni sem fjallar um barnabarnið mitt.  Á opnu plötualbúmsins eru allir textar og myndir af tónlistarmönnum og flytjendum í sem við Gylfi, maðurinn minn tókum á meðan á ferlinu stóð.“

Guðrún við gerð plötunnar

Tilfinningaþrungin stund þegar nálin fór plötuna

„Ég sagði við Gylfa, að ég vildi ekki fara af stað nema hann væri með, við gerum allt saman og ferlið er tímafrekt og kostnaðarsamt. Gylfi var allt umlykjandi í þessu ferli, lagaði kaffið handa mannskapnum, mokaði tónlistarmennina upp úr snjónum og margt fleira.

Eftir að master-platan er tilbúin sem tekur nokkar vikur er hún send Danmerkur. Það voru gerðar tvær prufuplötur sem átti að senda til Íslands, þar sem ég þurfti að hlusta á þær og samþykkja  áður en pressun plötunnar færi fram í Danmörku en það tekur fjórar til átta vikur. Það var í boði að fara og fylgjast með ferlinu og ég sagði við Gylfa: Nú fylgjum við bara plötunni alla leið, og við pöntuðum okkur far til Danmerkur. Ég hlustaði á prufuplöturnar þar. Mér hafði verið sagt að ég myndi heyra töfra plötunnar þegar ég heyrði tónlistina af vínylplötu og það gerðist. Þegar nálin fór á vínylplötuna, brast ég í grát. Það var stór stund að heyra þetta svona. Það var mikil breyting frá því að ég var ein með gítarinn minn og kunni fjögur grip og í fullbúna plötu. Nú voru lögin mín orðin „fullorðins“. Eftir alla vinnuna þá var þetta yndisleg stund.

Framleiðsluferlið fór svo að stað og ég startaði henni í orðsins fyllstu merkingu með því að ýta á takkann á pressuvélinni. Vínylhlunkur er settur í vélina, pressaður saman og eftir hálfa mínútu er önnur hlið plötunnar tilbúin, þetta er ótrúlegt. Það þarf svo að kæla plöturnar í sólarhring áður en þær fara í umslag. Það fara 30 mm af hverri plötu og sá vínill notaður í næstu plötur. Í klassík er notaður nýr vínill, en ef það er rokk eða pönk þá er meirihlutinn notaður gamall vínill. Eftir hálfa mínútu er önnur hliðin tilbúin. Sólarlag er 19 laga heilsteypt safn og fór á tvær plötur. Það var ætlunin að gera eina plötu en efnið var svo mikið að það þurfti albúm til. Mér finnst gaman að hafa albúm sem hægt er að opna, og skoða, ég  vildi hafa þetta almennilegt.“

Tilfinningaþrungin stund þegar platan fór á fóninn.

Berskjöldun að gefa út plötu

Ég ákváð að koma plötunni út 19. júní á afmælisdegi ömmu minnar sem ég heiti í höfuðið á en hún var eins árs þegar konur fengu kosningarétt. Mér fannst það táknrænt og líka vegna þess hve tímarnir og staða kvenna hefur breyst, við konur getum verið þakklát fyrir svo margt í dag.

Ég sem öll lög og texta á plötunni. Flest lögin eru samin á gítar. Ég keypti mér hljómborð í Covid, lærði eitthvað smávegis á það og náði að semja tvö lög á það. Eitt lagið, var við ljóðið Storm eftir Hannes Hafstein, mér fannst lagið sem er ljúft ekki passa  beint við kvæðið. Mig langaði heldur ekki að vera með texta eftir aðra á plötunni minni. Ég ákvað þá í stúdíóinu að hafa lagið instrumental, þ.e. engin texti.. Ég breytti líka nafninu á því úr Stormi í Paradís. Það eru tvö lög tengd gosinu, Noregsfarar, en það er mitt uppgjör frá kvöldinu fyrir gosið og þar til við komum heim á ný til Eyja. Og svo Sólarlag við smáeyjar sem er minn óður til heimahaganna, ég fór í huganum yfir eyjarnar eins og dróni, það er mjög miklar Vestmannaeyjar í því  lagi, þótt ég segi sjálf frá.“

Guðrún segir að önnur platan í albúminu innihaldi trúarleg lög en hin veraldlegri en með trúarlegum tilvísunum í þeim flestum. „Tvö lögin eru reyndar þannig að þú getur hlustað á þau sem trúarleg eða veraldleg en sköpun mín kemur mikið úr trúnni og minni reynslu. Lagið Algleymi er annað lagið sem ég samdi á píanó, annars eru lögin samin á gítar. Mamma fékk alzheimer-sjúkdóminn og lagið og textinn var mín leið til að vinna úr þeirri reynslu að ganga við hlið hennar í baráttunni en ég samdi það áður en hún dó. Ég sá fyrir mér hvað yrði þegar hún myndi losna úr viðjum sjúkdómsins og textinn byrjar á spurningum: Hvar ertu, hvert fórstu, hvað dvelur þú nú? Ég saknaði hennar því hún var að hverfa  en hún var samt þarna.“

Guðrún segir það sérstaka tilfinningu að gefa út svona plötu með eigin  lögum og textum því fylgir að fólk berskjaldi sig algjörlega. „Þetta gekk ótrúlega vel, einungis sex mánuðir frá því byrjuðum og þar til útgáfutónleikarnir verða. Ég hef verið ótrúlega heppin með fólkið í kringum mig. Ég gaf tónlistarfólkinu frelsi til að setja  sína túlkun í lögin. Ég vildi  koma plötunni út, ekki velta hverju smáatriði fyrir mér. Boðskapurinn er góður, en hann er í raun kærleikur allri sinni mynd.

Ég hlakka til útgáfutónleikanna í Eyjum, Þar stígur á svið blanda af heimamönnum og öðrum tónlistarsnillingum af plötunni. Eyjarnar verða ekki teknar úr manni og það er svo mikil söng- og tónlistarmenning í Eyjum, hún er eiginlega bara í blóði Eyjamanna og ég mun segja sögurnar af lögunum mínum á tónleikunum,“ segir Guðrún full tilhlökkunar

Útgáfutónleikarnir verða á föstudag 3. júlí, kl. 18.30 í Eldheimum á Goslokahátíð í Eyjum. Miðasala er á tix.is. Platan fæst í flestum plötubúðum, Kirkjuhúsinu, Lindinni og hægt er að hafa samband við Guðrúnu á Messenger.

Ragnheiður Linnet blaðamaður skrifar fyrir Lifðu núna.