Nú þegar hausta tekur á Íslandi og hitabylgjur sumarsins eru í rénun í Evrópu hyggja margir á utanferðir. Þótt sólin sé gleðigjafi og nauðsynleg til að hjálpa líkamanum að framleið D-vítamín hefur hún sínar dökku hliðar. UV-geislar hennar brenna húð og það þarf aðeins einn slæman sólbruna um ævina til að líkur á að menn fái húðkrabbamein aukist til muna. Sumir halda að hættan á því minnki með árunum en það er ekki rétt.
Sólin og það að verða sólbrúnn flýtir einnig öldrun húðarinnar um mörg ár. Hvert sinn sem fólk fær hinn eftirsóknarverða brúna lit um allan kroppinn eldist húðin um mörg ár. Meira að segja lítils háttar sólbruni getur skemmt frumur húðarinnar og skaðinn kemur kannski ekki í ljós fyrr en fimmtán til tuttugu árum síðar og þá getur fólk verið komið með húðkrabbamein. Meðalaldur þeirra sem greinast með melanoma eða húðkrabba eru 66 ár og 1 af hverjum 5 kemur til með að þurfa að takast á við þennan sjúkdóm um ævina, einkum þeir sem sóttu í sólina á yngri árum og lágu jafnvel í ljósabekkjum.
Skemmir líka augun
UV-geislar sólarinnar smjúga í gegnum húðfrumurnar og skemma erfðaefnið í þeim. Þegar skemmdirnar eru miklar deyja frumurnar og brennd húðin flagnar af. Fólk með dekkri húðlit hefur betri varnir gegn sólargeislunum en þeir með ljósa húð. Melanín eða litarefnið í húðinni ver hana og hvítt fólk hefur mun minna af því en þeir sem hafa dekkri húðliti. Það hjálpar þeim þeldekkri að dreifa geislunum og jafna út áður en þeir ná niður í dýpri húðlögin. Þegar skemmd eða bruni hefur orðið á húð byrjar hún strax að reyna að laga skaðann. Þegar bruni er slæmur, þ.e. ekki bara roði heldur blöðrur og sár er sýkingarhætta mikil og fólk getur fengið hita, kuldaköst, höfuðverk, ógleði og ofþornun. Allt þetta eru merki um alvarlegar afleiðingar sólbruna og hitaslag af völdum of mikillar sólar.
Það er ekki bara húðin sem þarfnast verndar þegar dvalið er í björtu sólarljósi. Augun eru viðkvæm líka og vísindamenn tengja langdvalir í sól við ákveðna tegund gláku. Hún getur valdið blindu og hornhimna augans getur sólbrunnið, sömuleiðis augnlokin og þá er hætta á húðkrabbameini þar. Það er alltaf mjög mikilvægt að verja sig gegn sólinni og gera allt hvað maður getur til að forðast það að brenna en eftir fimmtugt verður það enn mikilvægara en áður
Þótt húðkrabbamein sé vissulega afleiðing af langvarandi skemmdum af völdum sólar er ekki þar með sagt að það verði óþarfi að verja húðina þegar fólk eldist. Húðlæknar segja að vísindin hafi enn ekki aflað upplýsinga um hve miklar sólarskemmdir þurfi til að melanoma taki að myndast né heldur hvaða einstaklingar eru líklegri til að þróa með sér þessa tegund krabbameins en aðrir. Að brenna illa í sólbaði eftir fimmtugt getur verið dropinn sem fyllir mælinn og verður til þess að æxli taka að myndast.
Þynnri húð og veikara ónæmiskerfi
Þegar við eldumst þynnist húðin og UV-geislarnir eiga þess vegna greiðari leið ofan í húðlögin og geta valdið miklum skaða. Ónæmiskerfi okkar veikist einnig og líkaminn á þess vegna erfiðara með að bregðast við skaðanum og laga hann. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að það er auðvelt að forðast að verða fyrir skaða. Fyrst af öllu að nota sólarvarnarkrem og vera ekki úti í sólinni of lengi í einu. Meðan sólin er hæst á lofti eða á milli kl. 10 á morgnana og 4 á daginn er gott að takmarka sólböð. Eldra fólk ætti alltaf að vera með hatt helst með stórum börðum þegar það er á ferð í sól. Góð sólgleraugu eru algjör nauðsyn og léttur fatnaður sem hylur viðkvæma staði eins og axlir. Okkur hefur verið sagt að vera ekki svartklædd í sólinni eða í dökkum fötum því þau dragi í sig hitann en þau gera meira. Þau hindra-geislana í að ná til húðarinnar en þeir eiga aftur móti oft greiða leið í gegnum ljósan léttan klæðnað og oft sólbrennur fólk í gegnum fötin.
Fyrst eftir að fólk kemur út í sólina ætti það ekki að liggja í sólbaði lengur en hálftíma. Þann tíma má lengja smátt og smátt og sólarvörn þarf að bera á sig á tveggja tíma fresti. Sóldýrkendur sem hafa sótt í sólina alla ævi ættu að fara reglulega til húðlæknis og biðja um skoðun. Því fyrr sem húðkrabbamein greinist því auðveldara er að lækna sjúkdóminn. “
Einkenni húðkrabbameins:
Sár sem ekki grær.
Roði í kringum fæðingabletti og stækkun á þeim.
Kláði, viðkvæmni eða verkir í kringum fæðingabletti.
Fæðingablettur byrjar að flagna eða úr honum fer að vessa.
Húðkrabbamein eru algeng í andliti enda er sá líkamshluti ávallt ber í sólinni.







