Súpa við allra hæfi, bragðgóð og kraftmikil

600 g gott nautakjöt, skorið í bita

100 g pepperoni, saxað (smekksatriði hvort pylsan er notuð)

1 laukur, saxaður

150 g sveppir, skorin í bita

2 hvítlauksrif, pressuð

1/2 bolli grænar ólífur, skornar í sneiðar

1 rauð paprika, skorin í bita

1 dós saxaðir tómatar

1 1/2 l vatn

1 dós pintóbaunir

3 teningar kjötkraftur

1 bolli rauðvín

1 1/2 mak. paprikuduft

3 lárviðarlauf

1 tsk. kúmen

1 tsk. marjoram

2 1/2 dl rjómi

olía til steikingar

Steikið nautakjötið, pepperoni og laukinn í stórum potti. Bætið sveppum og hvítlauk út í og svo ólífum og papriku. Hellið vatni, tómötum og rauðvíni í pottinn og hrærið.  Bætið kryddi út í og sjóðið saman í 45 mínútur við vægan hita, ekki bullsjóða. Þá er pintóbaunum og rjóma bætt út í og súpan smökkuð til. Ef súpan er of bragðsterk hefur vatnið soðið niður og gott að bæta svolitlu vatni út í og/eða rjóma.

 

Ritstjórn mars 20, 2020 08:33