Forstöðumaður Miðstöðvar í öldrunafræðum ráðinn

Samkvæmt fréttatilkynningu á vef stjórnarráðsins hefur Margrét Guðnadóttir verið ráðin forstöðumaður Miðstöðvar í öldrunarfræðum. Miðstöðin er starfrækt undir heilbrigðisvísindastofnun Háskóla Íslands í samvinnu við Landspítala. Hún hefur það að markmiði að efla nýsköpun og þróun í þjónustu við eldra fólk, meðal annars með því að styrkja samstarf fræðimanna á sviði öldrunarfræða og safna saman á einn stað heildstæðum upplýsingum um stöðu eldra fólks á Íslandi.

Rekstur miðstöðvarinnar byggir á stuðningi heilbrigðisráðuneytis og félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, auk tekna frá rannsóknarverkefnum. Á meðal verkefna miðstöðvarinnar er að meta framgang og árangur þróunarverkefna á vegum Gott að eldast. Í slíkum verkefnum, sem 22 sveitarfélög og sex heilbrigðisstofnanir taka þátt í, er lögð áhersla á samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum. Söfnun gagna og eftirfylgni verður lykilatriði við að tryggja gagnsemi verkefnanna.

Margrét er hjúkrunarfræðingur með doktorspróf í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands og hefur sérhæft sig í heimahjúkrun. Hún hefur unnið að rannsóknum og þróun á samþættri þjónustu fyrir eldra fólk og fjölskyldur þeirra. Hún hefur stöðu lektors við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands og var áður kennslustjóri í heimahjúkrun hjá Reykjavíkurborg. Þar leiddi hún meðal annars innleiðingu á SELMU-teyminu, sem miðar að sérhæfðri meðferð eldra fólks í heimahúsum og valdeflingu starfsfólks í heimaþjónustu.

Með ráðningu Margrétar Guðnadóttur er stigið mikilvægt skref í átt að bættri þjónustu og aukinni nýsköpun í málefnum eldra fólks hér á landi.

Ritstjórn janúar 31, 2025 17:01