Danaprins heimsækir Borgarbókasafnið Kringlunni

Leiksýningin Hamlet verður frumsýnd á Litla sviði Borgarleikhússins þann 31. október næstkomandi. Í tilefni af því ætla leikstjóri verksins, Kolfinna Nikulásdóttir og aðalleikari, Sigurbjartur Sturla Atlason, sem fer með hlutverk sjálfs Hamlets prins af Danmörku, að mæta í Leikhúskaffi á Borgarbókasafninu Kringlunni mánudaginn 13. október klukkan 17:30 og segja frá sýningunni.  Í framhaldi af því gefst áhugasömum kostur að skoða leikmynd verksins í Borgarleikhúsinu og spjalla um þennan stórbrotna harmleik.

Hamlet eftir breska leikskáldið William Shakespeare er eitt þekktasta og vinsælasta verk leikhússögunnar, en það segir af af prinsinum Hamlet sem missir föður sinn á voveiflegan hátt og missir í framhaldi af því tengsl við fjölskylduna, við ástina og við sjálfan sig. Leikritið er marglaga og opið til túlkunar enda hafa leikstjórar og listamenn í aldanna rás fundið þar gamla og nýja þræði og spunnið sögur sem tala til áhorfenda á öllum tímum.

Kolfinna, sem leikstýrði verðlaunasýningunni Ást Fedru, hefur fengið til liðs við sig einvala lið leikara til að taka þátt í nýstárlegri uppsetningu verksins og listrænna stjórnenda en þýðandi er enginn annar en Þórarinn Eldjárn, sem hefur verið kallaður meistari íslenskrar tungu.

Allt áhugafólk um leikhús, leikritun og bókmenntir ætti því ekki að láta Leikhúskaffi á Borgarbókasafninu Kringlunni fram hjá sér fara á mánudag, enda má búast við áhugaverðu spjalli og umræðum.

Hjólastólaaðgengi er á viðburðinum.

Öll hjartanlega velkomin!

Sjá nánar á vef Borgarbókasafnsins