Ljóðaslammarar etja kappi á Borgarbókasafninu

Sagnalist og sviðslistir mætast í rafmögnuðum samruna á Safnanótt þegar Ljóðaslamm Borgarbókasafnsins 2026 fer fram. Aldrei hafa fleiri keppendur verið skráðir til leiks.

Spennið beltin því föstudaginn, febrúar 6. næstkomandi, á sjálfa Safnanótt verður Ljóðaslamm haldið með pompi og prakt á Borgarbókasafninu Grófinni.

Ljóðaslamm (Poetry Slam) felst í flutningi frumsamins ljóðs eða texta, þar sem áherslan er ekki síður á flutninginn en á ljóðið sjálft. Flutningurinn er sviðslist í sjálfu sér og geta þátttakendur nýtt sér ýmis listform, svo sem leiklist, tónlist eða myndlist, til að koma ljóði sínu á framfæri. Því er ekki um hefðbundinn ljóðalestur að ræða.

Í ár flytur hæfileikafólk á sviði ljóð- og sviðslistar frumsamin verk í keppninni. Í hléi stekkur síðan uppistandarinn, grínistinn og gítarleikarinn Andri Ívars á stokk, en Andri er þekktur fyrir að blanda tilþrifamiklum gítarleik inn í uppistandsrútínu sína sem skapar honum nokkuð afgerandi sérstöðu á Íslandi.

Kanadíski grínistinn Jennie Egerdie, sem búsett er í New York, verður einnig með atriði í hléi. Jennie er höfundur hjá The New Yorker og McSweeney’s og hefur skrifað bækur sem ratað hafa á lista New York Magazine yfir bestu gamanbækur ársins. Atriði hennar kallast „No One Else In The World Has This Problem / The Peanut Butter Bucket“.

Í lok kvölds velur dómnefnd síðan sigurvegara Ljóðslamms Borgarbókasafnsins 2026. Dómnefnd skipa tónlistarkonan Salka Valsdóttir, Jón Magnús Arnarsson, leikari, leikskáld og vinningshafi Ljóðaslamms 2017 og Örvar Smárason, rithöfundur og tónlistarmaður. Kynnir kvöldsins er Steiney Skúladóttir, leikkona, tónlistarkona og sketsahöfundur með meiru.

Þess má geta að í fyrra bar Marjón sigur úr býtum með ljóðið „Ég neita“. Í kjölfarið keppti Marjón við góðar undirtektir í SLAMOVISION sem fór fram í Dublin, Írlandi en í þeirri keppni etja kappi sigurvegarar Ljóðaslammsins í hverju þátttökulandi.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Borgarbókasafnsins:

www.borgarbókasafn.is