Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr sem fer, segir Jónas Hallgrímsson en vorboðarnir eru margir og margvíslegir og ótal hlutir kveikja mönnum vorhug í brjósti. Við viljum minna á suma þeirra.
Páskagult, ungar og egg
Páskarnir eru vissulega tímamót rétt eins og jólin. Þegar páskarnir ganga í garð er farið að birta og óhætt að skreyta allt hátt og lágt með gulum páskaungum, blómstrandi greinum og páskaliljum. Ungar og egg eru einnig rík tákn páskanna og eru til marks um að náttúran sé að vakna af vetrardvala og lífið að kvikna á ný. Máluð egg hafa ekki verið eins sterklega tengd páskum hér á landi og víða erlendis og þótt blásið sé úr hænueggjum og þau máluð á sumum heimilum láta flestir sér nægja súkkulaðieggin. Íslensku súkkulaðieggin eru einstök í sinni röð og hvergi í heiminum þekkist að fylla þau sælgæti og setja í þau málshátt. Það er sérlega skemmtilegur siður og ýmist er málshátturinn talinn endurspegla persónuleika þess sem fær hann eða spá fyrir um framtíðina. Hvort sem menn leggja eitthvað upp úr því eða ekki er alla vega öruggt að íslensk börn læra af þessu og sennilega hafa mörg þeirra lært að þekkja og nota ýmsa málshætti einmitt af því að þau fengu þá í páskaeggi.
Fermingarbörn í hvítum kyrtlum
Fermingar eru hluti af vorinu rétt eins og páskaliljur og farfuglar. Engilfríð uppáklædd börn í hvítum kyrtlum eru árlega minnt á að fullorðinsárin nálgist og ættingjarnir gleðjast með þeim á þessum fyrsta stóra degi í lífi þeirra flestra. Þetta er yfirleitt í fyrsta sinn sem allt snýst um þau og öll eru þau meðvituð um þá ábyrgð sem því fylgir. Veislan og gjafirnar hverfa iðulega í skuggann af því og sum kvíða fyrir og óttast mest að klúðra einhverju meðan önnur hlakka til og njóta athyglinnar. Flestir eru boðnir í að minnsta kosti eina fermingarveislu á hverju ári og leitin að réttu gjöfinni er árviss viðburður sem fylgir hækkandi sól.
Vorlaukarnir
Þegar fyrstu grænu sprotarnir taka að teygja sig upp úr moldinni og vorlaukarnir að springa út í ótal skærum litum anda menn léttar. Vorið er á næsta leiti. Oft er ótrúlegt að sjá þessi viðkvæmnislegu blóm blómstrandi gulum, bláum, bleikum, fjóbláum og hvítum blómum meðan enn er frost í jörðu og stundum teygja þau knúppana upp úr snjónum. Þá eru menn vissulega minntir á að lífið er sterkara en dauðinn.
Fjallgöngur og útivist
Fyrstu fallegu, hlýju vordagarnir eru svo orkugefandi að flestir taka undir með Páli Ólafssyni og lóunni og telja að nú eigi að vaka og vinna. Þess vegna fyllast allar götur og gangstígar af skokkurum, hjólreiðamönnum og göngufólki um leið og vora tekur. Reykvíkingar skunda líka upp í Esjuhlíðar en aðrir landsmenn upp á næsta fjall. Það er eitthvað við hreina loftið og ilminn af gróðri sem er að vakna á vorin sem kallar menn út. Vorvindar glaðir, glettnir og hraðir sem geysast um löndin og hreinsa burtu síðustu leifar vetrarins og hressa og kæta menn.
Sumartískan
Tískuhúsin í París, Mílanó, London og New York keppast við að sýna vor- og sumartísku sína í febrúar og mars og leggja línurnar. Aðrir fataframleiðendur taka svo við og senda á markað litríkan og léttan fatnað og allt í einu fyllast allar fataverslanir af rauðu, gulu, grænu, bleiku og bláu. Engu er líkara en að barn hafi sloppið í þekjuliti og slett um allt þar til úr varð ein allsherjarlitasprengja. Ekkert er skemmtilegra en að kaupa sér nýja sumarlega flík á vorin og bíða síðan spenntur eftir að fá tækifæri til að nota hana.
Vetrarblóm
Á vorin blómstra vetrarblóm fyrst allra íslenskra jurta. Meðan önnur blóm liggja enn í dvala og eru varla farin að bruma, blómstrar þessi harðgera litla jurt dumbrauðum blómum sem eru einstaklega heillandi. Menn rekast á vetrarblóm í hlíðum fjalla, á hrjóstrugum melum og í klettum. Einn þeirra staða þar sem finna má vetrarblóm eru móbergsklettarnir við Kleifarvatn.
Brumið á trjánum
Brumið á trjánum og örsmá græn laufin á öðrum plöntum gleðja marga á vorin. Garðeigendur eiga greiðari aðgang að þessu en aðrir því þar kviknar lífið fyrr en úti í náttúrunni. Vorverkin í garðinum taka líka allan tíma þeirra og trjáklippurnar, hrífur, áburðarpokar og ruslapokar eru jafnómissandi hluti af vorinu og sólin. Segja má að á vorin sé lagður grunnurinn að gróskunni í garðinum um sumarið. Garðhúsgögnin skila sér líka á sinn stað og grillið. Sumir segja að þeir viti að vorið sé komið þegar grillilmurinn berst um nágrennið kvöld eftir kvöld.
Vorið í fjörunni
Það vorar í sjónum rétt eins og á landi. Margir landsmenn leggja leið sína niður í fjöru á vorin til að skoða kvikindi undir steinum og ofan í pollum. Í fjöruborðinu eru smáfuglar í óða önn að tína í sig fæðu til að bæta sér upp orkumissinn á langfluginu yfir hafið og æðarfuglar para sig og sjófuglar koma sér fyrir í bjarginu. Á vorin má sjá alls konar flækinga í fjörum og á tjörnum. Þetta eru fuglar sem hvíla sig hér skamma hríð áður en þeir halda aftur af stað á sínar varpstöðvar. Sumir eru á leið til Evrópu, aðrir á leið til Ameríku. Hvort sem fuglinn er á leið í austur eða vestur er víst að vorin og haustin eru uppáhaldsárstímar fuglaskoðara og þeir draga upp sjónaukann og ganga glaðir af stað niður að sjávarsíðunni.
Ferðahugurinn gagntekur
Á vorin kemur ferðahugur í menn. Sífellt fleiri fara í skíðaferðalög um páskana eða ferðast til erlendra borga á vorin til að upplifa þar blómstrandi ávaxtatré. Epla- og kirsuberjatré blómstra einstaklega fallega og í sumum borgum liggja langar raðir slíkra trjáa meðfram helstu götum. Þetta er ævintýraleg sjón í augum Íslendinga og það er þess virði að upplifa vor í suðlægari borgum en Reykjavík. Menn leggja líka grunninn að sumarferðunum á vorin þannig að ferðaáætlanir, kort og farseðlakaup eru hluti af vorverkunum.
Hreingerning og gluggaþvottur
Þeim fer fækkandi sem gera vorhreingerningu en þó eru nokkrir til sem enn snúa öllu við á heimilinu á vorin og þvo hátt og lágt. Á árum áður var það hluti af húsverkunum að hreinsa allt frá gólfi upp í rjáfur á vorin og tekið var út úr hverjum einasta skáp og hann þveginn að innan. Þarna gafst gott tækifæri til að henda og hreinsa til. Vorin eru góður tími til slíks og kannski er vorhreingerningin siður sem eftirsjá er í en þótt menn hafi ekki tíma til að þrífa allt er að minnsta kosti hægt að taka til í geymslunni eða þvo gluggana.







