„Fallegasta sýning náttúrunnar“

Sólmyrkvasmiðja með Sævari Helga Bragasyni verður haldin á Borgarbókasafninu Kringlunni laugardaginn 11. apríl.

Hvað er svona merkilegt við almyrkva á sólu? Hvernig getum við fylgst með sólmyrkva á öruggan hátt?

Laugardaginn 11. apríl ætlar Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, að bjóða upp á lauflétta fræðslustund í sólmyrkvasmiðju fyrir alla aldurshópa á Borgarbókasafninu Kringlunni.

Í smiðjunni kennir Sævar Helgi þátttakendum að skoða sólina í gegnum sjónauka og hvenær nota á sólmyrkvagleraugu og hvenær ekki. Auk þess fá þátttakendur að spreyta sig á smíði einfalds tækis til að fylgjast með sólmyrkvanum 12. ágúst næstkomandi.

„Við ætlum að föndra svona örtæki til að fylgjast með sólmyrkvanum á mjög einfaldan hátt,“ útskýrir Sævar léttur í lund. „Ég lofa því að þetta verður skemmtilegt og fróðlegt, enda umfjöllunarefnið fallegasta sýning náttúrunnar.“

Viðburðinn hefst kl. 13:00 á laugardag.

Ókeypis inn en skráning nauðsynleg.

Öll hjartanlega velkomin.

Nánari upplýsingar um viðburðinn á heimasíðu Borgarbókasafnsins:

www.borgarbokasafn.is