Líklega hafa fáir ef nokkrir þjóðvegir í heiminum yfir sér sama ævintýraljóma og Route 66 í Bandaríkjunum. Nat King Cole söng Route 66, Chuck Berry Get Your Kicks on Route 66 og KK Þjóðvegur 66. Reyndar hafa nokkrir minni spámenn sungið um þennan þjóðveg en það nægir að nefna þessi þekktu lög sem flest okkar hafa dansað við. Þeir Einar Kárason, Ólafur Gunnarsson, Jóhann Páll Valdimarsson, Sveinn Sveinsson og Aðalsteinn Ásgeirsson eða Steini í Svissinum lögðu svo upp í ævintýralegt ferðalag á fornbíl eftir þjóðvegi 66. En hvað er svona töfrandi við þennan veg?
Þótt þú sért almennt áhugalaus og vegi og löng bílaferðalög hefur þú án efa heyrt af Route 66. Hann lá eitt sinn þvert yfir Bandaríkin, frá austri til vestur eða öfugt en í dag hefur leiðin verið brotin upp á nokkrum stöðum. John Steinbeck setti leiðina eftirmiinnilega á kortið í skáldsögunni Þrúgur reiðinnar og bandarískir mótorhjólakappar voru ekki lengi að komast að því að meðfram þessum vegi var að finna sumar af helstu náttúruperlum þessa víðfeðma lands.
Route 66 var lagður árið 1926 og honum var ætlað að tengja smábæi og minni staði við allar helstu borgir Bandaríkjanna auk þess að opna greiðari leiði til vesturs. Árið 1985 var þjóðvegur 66 hins vegar opinberlega lagður niður en hlutar hans standa hins vegar enn óbreyttir og mjög margir kjósa að feta sig eftir þeim og upplifa stemninguna. Auðvitað verður að hafa með sér gott safn af þjóðlaga- og rokktónlist, helst vera á reykspúandi kadilakk 1960 eins og þeir Einar, Ólafur, Sveinn, Jóhann Páll og Aðalsteinn eða á mótorhjóli í anda Easy Rider.
Hitt og þetta á leiðinni
Víst er að á leiðinni munu mæta þér ótal fallegir staðir, þónokkrar týpískar þjóðvegasjoppur í amerískum stíl, blikkandi neonljós og langir eyðimerkurkaflar. Hér eru sjö staðir sem vert er að heimsækja þegar ekið er eftir þjóðvegi 66.
- Chain of Rocks Bridge við fylkjamörk Illinois og Missouri.
- Devil’s Elbow Bridge í Missouri
- Tucumcari Mountain í New Mexico.
- Petrified Forest National Park í Arizona.
- Meteor Crater í Arizona.
- Bearizona Wildlife Park í Arizona.
- The Mojave National Preserve í Kaliforníu.
Hér eru nokkrar skemmtilegar staðreyndir um Route 66.
Route 66 var opinberlega opnaður þann 11. nóvember 1926 en lokið var við að malbika síðustu metrana árið 1938.
Þjóðvegurinn tengdi Chicago og Los Angeles og var í raun lengsti og fyrsti eiginlegi þjóðvegur (highway) Bandaríjanna. Hann var einnig greiðfær en fram að því höfðu margir helstu vegir landsins verið malarvegir sem urðu leiðinlegir yfirferðar í slæmum veðrum.
Um það bil 210.000 manns ferðuðust eftir Route 66 meðan á landbúnaðarkreppunni sem kölluð er í Bandaríkjunum The Dust Bowl stóð. Vegna ofræktunar þornaði upp jarðvegur víða í stórum landbúnaðarfylkjum meðal annar Ohio og landið varð að óræktanlegri rykeyðimörk og fólkið tók sig upp í stórum hópum og lagði á flótta suður í von um vinnu. Þetta er efni skáldsögunnar Þrúgur reiðinnar eftir John Steinbeck.
Árið 1956 voru sett lög, The Federal-Aid Highway Act, en þau snerust um að skapa vegakerfi sem teygði anga sína milli allra ríkja Bandaríkjanna og lagning þeirra vega gerði Route 66 óþarfan.
Route 66 var í raun úreltur árið 1985 enda voru þá komnir þjóðvegir um allt meðal annars Interstates 40. Hins vegar var ákveðið að varðveita kafla vegarins og merkja Historic Route 66 til að gera ferðafólki kleift að heimsækja þennan sögufræga veg og upplifa leiðina. Um það bil 85% vegarins eru enn til og í ökuhæfu ástandi en ekki allir þeir kaflar eru merktir leiðinni.
Endastöðvar Route 66 eru Navy Pier og Santa Monica Pier. Þessar hafnir hafa verið kallaðar táknræn akkeri vegna þess að þær marka hefðbundið upphaf og endi þeirrar leiðar sem flestir fara þegar þeir ferðast eftir Route 66.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







