Sáð og uppskorið með barnabörnunum

Flestir njóta þess að verja tíma með barnabörnunum og leggja sig þá alla fram um að finna eitthvað skemmtilegt að gera sem allir geta notið. Útivera er auðvitað dásamleg á sumrin en stundum viðrar ekki til leikja úti við. Hér eru nokkrar hugmyndir af því hvernig má skemmta athafnasömum krökkum þegar rigning og rok skella á gluggunum.

Auglýsing

Baðstofustemning

Í baðstofunni í gamla daga sat fólk saman og skemmti hvert öðru með margvíslegum hætti. Einhver kvað rímur, annar tók svo við las upp úr húslestrarbókinni eða Íslendingasögunum. Ömmur sögðu ævintýri, konur fóru með kvæði og hagyrðingar köstuðu fram stökum.  Það er alls ekki úr vegi að endurvekja þessa gömlu stemningu. Hvernig væri að setja öllum viðstöddum það verkefni fyrir að finna eitthvað til að skemmta hinum með fyrir kvöldið? Síðan yrði slökkt á sjónvarpinu eftir kvöldmat og um háttatíma hefðu allir lagt sitt af mörkum til að gleðja hina.

Spurningakeppni

Pub Quiz eru vinsæl og skemmtileg afþreying. Það mælir ekkert á móti því að fjölskyldan taki nokkur slík. Hægt er að byrja á að skipta upp í lið og svo skiptast á að semja spurningar og spyrja. Þetta er líka góð þjálfun í að afla sér fróðleiks meðan skólastarf liggur að stórum hluta niðri.

Auglýsing

Bakstur, matargerð og handavinna

Margir nota tækifærið þegar barnabörnin koma til að iðka áhugamál og kynna þau fyrir yngri kynslóðinni. Prjónarnir eru gripnir, saumað út og heklað. Aðrir kjósa að elda flókna rétti, margréttaðar máltíðir og baka fyrir frystikistuna.

Litir, málning og blýantar

Ekki er langt síðan að litabækur fyrir fullorðna voru algengustu afmælis- og jólagjafir ársins. Sumar þeirra eru enn óútfylltar að einhverju leyti og fínt að taka þær fram aftur og gleyma sér við að gæða blómamyndir, flugur, tré, fugla og önnur náttúrufyrirbæri lífi. Skapandi fólk þarf svo engar fyrirmyndir, það teiknar, málar og litar eigin sköpunarverk. Það er fyrirtak að virkja börnin með og fá þeim sínar litabækur, teikniblokkir, liti og pensla.

Auglýsing

Eins og maðurinn sáir

Hásumartíð og þá er gaman að rækta. Hvers vegna ekki að nota tækifærið og umpotta pottablómum með börnunum, sá kryddjurtum, taka afleggjara eða leyfa þeim að stinga fræi í mold. Börn hafa gaman af að sjá hvernig jurt vex upp af fræi og athafnasamir krakkar sem ekki geta verið úti að leika geta gert tilraunir með að sá appelsínu og eplasteinum, paprikufræjum eða setja niður afleggjara. Þegar jurtirnar taka að vaxa verða þau svo spennt að fá aftur að koma í heimsókn til ömmu og afa til að sjá hvernig þær hafast við.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.