Skoraðu streituna á hólm

Margir bíða spenntir eftir að komast á eftirlaun vegna þess að þeir telja að þá minnki streitan í lífi þeirra og loks geti þeir slakað á og notið hversdagsins. Staðreyndin er hins vegar því miður sú að streituvaldar í lífi nútímamanna eru það fjölbreyttir og margir að þótt menn þurfi ekki lengur að vakna til vinnu mætir þeim ótalmargt annað ekki síður krefjandi. Streituhormónið kortisól eykst þess vegna í líkama sumra fremur en að minnka.

Auglýsing

Vaknaðir þú klukkan sjö í morgun við að sonur þinn hringdi í örvæntingu og bað þig að taka barnabörnin? Var enn einu sinni lokað vegna myglu eða manneklu á leikskólanum? Slysaðist þú kannski til að opna tölvupóstinn þinn áður en þú fékkst þér fyrsta kaffibollan og sást blasa við að þín biðu einhver skilaboð á island.is. Það er okkar reynsla að þau skilaboð eru sjaldnast gleðileg. Nú og þá er að finna símann skrá sig inn með rafrænum skilaboðum og horfast í augu við það sem bíður.

Næst er að koma sér almennilega á fætur fara út í búð og leita að nauðsynjum með glymjandi tónlist í eyrunum og slást við sjálfsafgreiðslukassann þegar búið er að tína saman þessi hæti sem vantaði. Hugsanlega þarf bíllinn viðhald og þú þarft að hringja í pípulagningamanninn sem lofaði að koma fyrir þremur mánuðum. Já, og tíminn hjá augnlækninum er á morgun eftir sex mánaða bið.

Væntingar bregðast og valda streitu

Allt þetta veldur streitu og ofan á allt þetta bætast við væntingarnar. Við þurfum, eiginlega verðum, að hreyfa okkur í minnst hálftíma á dag og stundum er erfitt að finna tíma til þess. Eigum að velja hollan og nærandi mat, elda hann frá grunni, passa upp á að drekka nóg vatn og finna leiðir til að þjálfa hugann á hverjum degi líka. Ef farið er samviskusamlega eftir þessum fyrirmælum tryggir það langa og hamingjuríka ævi nema þegar það gerir það ekki og væntingarnar sem við fórum að gera okkur vegna þess að við fórum eftir þessu geta brugðist. Heilsufarsvandamál koma ekki eingöngu upp hjá þeim sem hafa óheilbrigðan lífsstíl. Við héldum að nægur tími gæfist fyrir gamla vini en í stað þess að hitta þá í hádegismat fylgjum við þeim til grafar.

Streituhormónið kortisól vex í líkamanum í hvert sinn sem einhver áföll ríða yfir eða eitthvert áreiti kemur okkur í uppnám. Það er þekkt að framleiðsla kortisóls eykst hjá konum á breytingaskeiði og er oft hátt í líkömum þeirra í langan tíma. Hátt kortisól getur valdið svefntruflunum, einbeitingarskorti, orkuleysi og þyngdaraukningu. Ef ekkert er að gert og streitan er viðvarandi í langan tíma getur það haft áhrif á líffærin og skapað hættu á margvíslegum sjúkdómum. Kortisól er nauðsynlegt til að hjálpa okkur að halda blóðsykrinum í jafnvægi, örva meltinguna, hjálpa okkur að vakna á morgnana og halda ónæmiskerfinu virku. Þegar við þurfum að bregðast við hættu og erfiðum aðstæðum framleiða nýrnahetturnar adrenalín og kortisól. Það er hins þegar það hverfur aldrei úr líkamanum og streitan verður viðvarandi eða krónísk að það fer að eyðileggja meira en það hjálpar þá getur það ýtt undir hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýki 2, ofþyngd, beinþynningu og heilabilun.

Ráð við streitu

En hvað er þá til ráða ef streitan er farin að verða allsráðandi í lífi okkar? Jú, sérfræðingar mæla með að við leitumst við að halda kortisólinu í jafnvægi. Ekki berjast við að losna við það úr líkamanum heldur leyfa starfsemi líkamans að fylgja eðlilegum farvegi. Kortisól má því vera hátt á morgnana þegar við þurfum á því að halda að vakna og fara hress og athugul út í daginn en ná lágmarki á kvöldin áður en við leggjumst til hvílu. Með því að vera virkust á morgnana og hádaginn en draga verulega úr athafnaseminni í eftirmiðdaginn getum við hjálpað líkamanum að gera einmitt þetta. Allir vita að regla og rútína á öllum sviðum hjálpar líkamanum að halda heilbrigði. Að fara alltaf að sofa á sama tíma, vakna á sama tíma, borða á sama tíma, borða hollan mat og fara út að hreyfa sig eru allt saman margreyndar og traustar leiðir til að bæta og viðhalda heilsu, draga úr streitu og auka andlega vellíðan.

Hvernig vitum við hvort kortisól er of hátt í líkama okkar eða ekki? Það er góð spurning en sérfræðingar segja að ef við vöknum úthvíld á morgnana, finnst við hafa nokkuð samfellda og góða orku yfir daginn, eigum ekki í erfiðleikum með að halda athygli, upplifum ekki miklar skapsveiflur í daglega lífinu og eigum auðvelt með að sofna á kvöldin þá erum við í góðu lagi. Þess vegna er gott að hafa þessi ráð í huga:

Settu svefninn í forgang

Til að tryggja góða hvíld á hverri nóttu ættu allir að setja svefninn í algjöran forgang. Fara í rúmið á sama tíma á hverri nóttu, hætta að horfa á skjátæki klukkutíma áður en farið er að sofa, hvíla hugann áður en farið er upp í rúm t.d. með hugleiðslu eða einfaldlega að sitja í rólegheitum með bók eða njóta þess að horfa út um gluggann.

Auglýsing

Farðu út á morgnana

Farðu út fljótlega eftir að þú vaknar á morgnana. Á þeim tíma dagsins er líffræðileg klukka líkamans helst móttækileg fyrir birtunni og útiloftinu. Þótt hér sé myrkur nánast allan sólarhringinn á veturna nemur líkamann það litla ljós sem þó er að fá og það örvar melatónín framleiðslu og bætir andlega líðan.

Vertu viss um að þú borðir nóg

Ein stærstu mistök sem nútímamenn gera að minnka matarskammtinn sinn. Í mörg ár hefur verið hamrað á því að við eigum að borða minna og hreyfa okkur meira en staðreyndin er sú að líkaminn þarf mat og nóg af honum. Að sleppa máltíðum eða borða sama og ekkert stóran hluta dagsins gerir ekkert nema að ýta undir streitu, gera okkur skapvond, orkulaus og leið. Borðið reglulega yfir daginn og sjáið til þess að hver máltíð innihaldi prótíngjafa, holla fitu, trefjar og kolvetni.

Hreyfið ykkur reglulega en leyfið líkamanum að jafna sig á milli

Auglýsing

Líkamsþjálfun er ein fljótvirkasta og besta leiðin til að draga úr stressi en ef fólk neyðir sig til að ástunda hreyfingu sem það hefur engan áhuga á er það eingöngu að auka streituna. Hver og einn ætti að leitast við að finna einhvers konar líkamsrækt sem hann getur notið ástunda hana en leyfa sér að hvíla sig á milli æfinga. Dagleg hreyfing þarf ekki að vera áreynslumikil en þrjár erfiðar æfingar í viku eru nóg til að byggja upp þrek og minnka streitu. Líkamsræktin á að vera leið til að draga úr streitunni en ekki streituvaldur.

Prófaðu öndunaræfingar

Þegar streitan nær tökum á þér er gott að grípa til öndunaræfinga. Finna má slíkar æfingar á netinu og á YouTube er fólk leitt í gegnum þær. Þetta eru einfaldar æfingar en reglulega öndun djúpt ofan í kviðinn og löng fráöndun róar taugakerfið og slakar á öllum líkamanum.

Finndu leiðir til að draga úr streituvöldum

Það er ómögulegt að útrýma streituvöldum. Þeir eru einfaldlega svo margir. Umferðin í borginni, hávaðinn í flugvélunum yfir höfðum okkar og hraðinn á tækniframförum og breytingum á samfélaginu eru utan okkar stjórnsviðs. Það sem við hins vegar getum gert er að skapa okkar eigin öruggu höfn í huganum, inni á heimilinu og þegar við förum út. Hættum að ætlast til of mikils af sjálfum okkur og öðrum og einbeitum okkur að því að njóta þess sem við gerum meðan við gerum það. Þannig viðhorf kemur fólki langt í áttina að því að minnka stressið í lífi sínu.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.