Er gervigreind eitthvað sem við þurfum að hafa áhyggjur af eða einfaldlega góð viðbót sem sparar okkur vinnu og tíma? Saga Úlfarsdóttir, sérfræðingur í gervigreind, fjallar um tækifærin og áskoranirnar sem henni fylgja á Borgarbókasafninu Spönginni mánudaginn 19. október.
Gervigreind er orð sem ber æ oftar á góma og er umfjöllunarefni á fyrsta Fræðakaffi haustsins sem fram fer á Borgarbókasafninu Spönginni, mánudaginn 19. október kl. 16:30-17:30. Þar mun Saga Úlfarsdóttir, verkfræðingur, fjalla um hvernig nýting gervigreindar hefur áhrif á okkar daglega líf og þá ekki síst atvinnu okkar. Hvað gerist þegar við erum komin með stafrænan vinnufélaga? Hver verða áhrif gervigreindarinnar á okkur persónulega, samfélagið, vinnustaðinn og framtíðina?
Saga Úlfarsdóttir er verkfræðingur með sérhæfingu í gagnavísindum og gervigreind. Hún hefur m.a unnið sem Head of AI hjá Travelshift og ráðgjafi í gervigreindarteymi Advania. Hún er nú með eigið ráðgjafafyrirtæki sem hjálpar fyrirtækjum að nýta gervigreind á ábyrgan hátt.
Fræðakaffi er viðburðaröð sem fer fram á Borgarbókasafninu Spönginni og hefur notið mikilla vinsælda.







