Margrét S. Höskuldsdóttir hefur sannarlega skapað sér sess meðal okkar bestu glæpasagnahöfunda Fjórða bók hennar, Eldur í öskunni leynist, er vel skrifuð, þétt og áhugaverð sakamálasaga. Hér kallast á lögreglurannsókn í nútímanum og gamlar glæpir sem loks eru að koma upp á yfirborðið.
Bergur hefur enn ekki náð sér fyllilega eftir þau áföll sem dundu yfir hann og Rögnu við rannsókn fyrri mála. Samband hans og Bjargar styrkist en þegar gömul bein finnast á Dynjandisheiði og í kjölfarið verða dularfull dauðsföll vaknar innsæi Bergs og hann finnur að þessi mál eru tengd. Ragna er ekki fyllilega vinnufær enn og er í endurhæfingu. Bergur leitar til hennar og fær aðstoð við að grafa upp ýmsar upplýsingar því Sigurður yfirmaður hans bregst undarlega við mörgum þáttum þessara mála.
Líkt og í fyrri bókunum gerist sagan á tveimur tímaskeiðum. Annars vegar í nútímanum og hins vegar á Ísafirði árið 1973. Þar hefur þremur systkinum verið komið fyrir hjá vinafólki foreldra þeirra í kjölfar Vestmannaeyjagossins. Þetta er tveir drengir og ein stúlka. Húsið þeirra er farið undir hraun, móðirin veik og faðirinn úti í Eyjum að vinna björgunarstörf. Síðar koma í þorpið tvær systur, líka úr Eyjum, og svo vel vill til að eldri systirin er besta vinkona stúlkunnar í fyrri hópnum. Börnunum er ekki alls kostar vel tekið af heimamönnum. Þau verða fyrir einelti af hálfu strákahóps og andúð gegn þeim meðal fullorðna fólksins fer vaxandi. Stúlkunum gengur þó heldur betur en drengjunum þar til eina örlagaríka nótt hverfur önnur þeirra.
Margrét nær að flétta einstaklega trúverðuga og flotta sögu í þessari bók. Grimmdin og skilningsleysið sem mætti mörgum Vestmannaeyingum eftir gosið kemur hér vel fram og eins byggir hún vel upp vaxandi spennu meðal barna þar sem einelti fær að þrífast. Obeldið hleður utan á sig og smátt og smátt verður í lagi að ganga sífellt lengra þar til verulega illa fer.
Bergur og Ragna eru skemmtilegar aðalpersónur. Hann er skarpur og fljótur að skynja þegar eitthvað gengur ekki fyllilega upp. Ragna á hinn bóginn vinnuþjarkur og ein af þeim sem hættir ekki fyrr en hún hefur rakið þráðinn til enda. Síðasta bók Margrétar Lokar augum blám hlaut Blóðdropann sem var verðskuldað og þessi er ekki síðri.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







