Listaverkabækur eru almennt, stórar og glæsilegar. Við leggjum þær á sófaborð eða ofan skenkinn í stofunni til að freista gesta og okkar sjálfra. Og margir grípa þær, fletta og skoða. Þarna blasa við mörg stórkostlegustu listaverk sögunnar og það er auðvelt að gleyma sér við að skoða og rýna í smáatriði. En það er ekki síður mikilvægt að leggja sig eftir textanum. Í þessum bókum skrifa listfræðingar fróðlegan og áhugaverðan texta um listamanninn, áhrif hans á samtíma sinn, daginn í dag og ekki síður um hvað hann tekur úr sinni tíð og endurskapar það. Anna Jóhannsdóttir gerir það fantavel í nýrri glæsilegri bók um Svavar Guðnason, Svavar Guðnason, Litróf birtunnar – um list brautryðjanda.
Svavar var einstakur brautryðjandi í abstraktlist og hluti af hinum fræga og áhrifamikla hópi listamanna Cobra. Ævi hans er stórmerkileg og hvernig hann þroskaðist sem listamaður. Hann fæddist á Höfn í Hornafirði og stórbrotið landslag þess þá einangrað staðar og jöklasýn mótaði unga manninn. Hann kynntist myndlistinni í gegnum Ásgrím Jónsson sem oft kom austur til að mála nokkur sumur. Hann hefur svo mikil áhrif á nokkra unga menn þar um slóðir að þeir mynda hóp op byrja að mála. Svavar fer til Reykjavíkur og þar heldur hann áfram að drekka í sig áhrif frá öðrum listamönnum og sköpun þeirra og kemst í kynni við bestu málara samtíma síns. Hann heldur síðan til náms í Konunglega listaháskólanum í Kaupmannahöfn og þar kemst hann í kynni við helstu strauma og stefnur í listsköpun í Evrópu og hann er næmur, fljótur að taka inn fróðleik en einnig leggja eigið mat á hann og túlka á sinn hátt.
Verk Svavars eru einstaklega áhrifamikil og íslenskir listunnendur þekkja flestir hve yfirþyrmandi þau geta verið og þá staðreynd að þeirra er best notið úr ákveðinni fjarlægð. Þegar staðið er álengdar og horft á eitthvert verka Svavars lifna þau við og dýptin, fjörið og lífið í þeim verður augljóst. Þetta er einmitt aðalsmerki Svavars sem listamanns, hvernig hann nær að nota liti til að skapa spennu, dramatík og eitthvað sem er freistandi að kalla rómantík. Anna skýrir allt þetta listavel og opnar einnig nýja sýn. Það er óhætt að segja að undirrituð mun skynja birtu í málverkum á annan hátt eftir að hafa lesið umfjöllun Önnu um litrófið og hvernig Svavar nýtir sér litina ekki bara til að hafa áhrif en einnig til að túlka og endurspegla umhverfi sitt, andrúmsloft eftirstríðsáranna og náttúru Íslands.
Svo er ekki hægt að horfa framhjá öllum þeim glæsilegu ljósmyndum sem prýða bókina og hjálpa lesandanum að rýna í átökin í verkunum, upplifa þau og njóta. Þetta er einstaklega vel unnin og falleg bók og óhætt að mæla með henni til gjafa, til að leggja á sófarborðið en einnig til að lesa, skoða, rýna í og njóta aftur og aftur.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







