Er rangt að falsa listaverk?

Breskir sjónvarpsþættir, Fake or Fortune, eru sérlega áhugaverðir. Fólk hefur samband við þáttastjórnendur, þau Fionu Bruce og Philip Mould, vegna listaverka sem annað hvort hefur rekið á fjörur þess eða það fengið í arf og biður þau um hjálp við að sanna eða afsanna að um fjársjóð eftir frægan listamann sé að ræða. Þessir þættir eru ákaflega fróðlegir og vel unnir en áberandi er hversu oft upp koma nöfn afkastamikilla falsara. Menn sem eiga það sameiginlegt að vera hæfileikaríkir listamenn en kjósa nota hæfni sína til að blekkja fólk og hafa af því fé.

Auglýsing

Í þáttunum er stundum talað við falsara sem enn eru á lífi og hafa tekið út refsingu sína. Þeir virðast sjaldnast sjá eftir því sem þeir gerðu og það er svolítið merkilegt viðhorf. Við hér á Íslandi erum ekki undanskilin fjársvikum af þessu tagi. Talið er að allt að 300 fölsuð verk séu í umferð hér á landi og hluti þeirra fannst í gjöf til Listasafns Íslands. Í kjölfarið hélt safnið sýningu á verkunum en mörg listasöfn eiga stórt safn falsaðra verka og sum hafa það gildi að vera eftir fræga falsara.

Þegar málverkafölsunarmálið var hvað mest umtalað í samfélaginu á tíunda áratug síðustu aldar voru uppi raddir um að listaverkakaup væru fyrst og fremst snobb og listaverkakaupendur uppskafningar sem vildu upphefja sig á listaverkasöfnun. Sú staðreynd að þeir hefðu tapað umtalsverðum fjárhæðum vegna svikanna væri hégómi því ef þeir hefðu hrifist af málverkinu ætti engu að skipta hver hefði haldið á penslinum. Svo virtist sem sumum þætti jafnvel fyndið að haft hefði verið fé af fólki.

Hans Van Meegeren

Frægir falsarar og listræn heilindi

Umræða sem þessi er ekki ný af nálinni eða þau rök að fagurfræðin sé sú sama og því ætti einu að gilda hvað gefið væri fyrir verkin. Alfred Lessing skrifaði grein árið 1965 þar sem hann leitaðist við að svara spurningunni: Hvað er rangt við listaverkafölsun? Hann kemst að þeirri niðurstöðu að falsanir geti haft fagurfræðilegt gildi og sú staðreynd að þær séu kenndar öðrum dragi ekki úr slíku verðmæti en þær skorti frumleika og listræn heilindi. Þar með séu þær verðlausar vegna þess að þær séu aðeins eftirlíkingar listrænna afreka annarra.

Han van Meegeren er meðal þekktustu listaverkafalsara sögunnar. Hann þótti sjálfur aðeins í meðallagi góður málari og gagnrýnendur sögðu hann skorta frumleika og hæfnina til að hrífa. Hann móðgaðist við þessa dóma og tók markvisst að æfa sig í tækni hollensku endurreisnarmálaranna og málaði nokkur verk sem hann kenndi Vermeer. Honum tókst að blekkja listfræðinga svo rækilega að eftir seinni heimstyrjöld var hann lögsóttur af hollenska ríkinu fyrir að selja nasistum listaverk sem teldust þjóðargersemi. Uppi varð fótur og fit þegar Han van Meegeren upplýsti að um falsanir hefði verið að ræða. Sjálfur sagðist hann hafa falsað verkin til að fletta ofan af hræsni og kunnáttuleysi hollensku listaelítunnar.

Eitt af verkunum sem Van Meegeren falsaði og seldi nasistum.

Robert Driessen er afkastamikill falsari og átti líkt og van Meegeren harma að hefna. Enginn sýndi málverkum hans áhuga svo hann hóf að falsa verk og kenna þau þekktum expressjónistum. Svo fann hann fjölina sína, hæfileikann til að gera sannfærandi verk í anda Alberto Giacometti. Robert framleiddi, að því er lögregla telur, þúsundir styttna og seldi sem verk eftir þann meistara. Eftir að upp um hann komst hélt hann iðju sinni áfram en merkti framleiðsluna sjálfum sér og selur frá Taílandi þar sem hann býr utan seilingar lögregluyfirvalda í Evrópu. Hið sama gerði Bretinn John Wyatt þegar hann var afhjúpaður en hann falsaði meistara á borð við Marc Chagall, Jean Dubuffet og Henri Matisse. Í dag ganga falsanir hans kaupum og sölum merktar honum sjálfum.

Elmyr de Hory

Framleiddu verk í stórum stíl

Elmyr de Hory framdi sjálfsmorð þann 11. desember árið 1976 á glæsilegu heimili sínu á Ibiza. Hann tók inn ofskammt af svefnlyfjum vegna þess búið var að samþykkja framsalskröfu franskra yfirvalda og hann átti yfir höfði sér að vera sendur heim til að koma fyrir dóm vegna málverkafalsana. Hann sérhæfði sig í ítalska málaranum Amedeo Modigliani. Enn er ekki fyllilega vita hversu mörg verk hann falsaði og hve mörg þeirra eru enn í umferð.

Falsað verk eftir Elmyr de Hory

Wolfgang Beltracchi var einnig afkastamikill en hann falsaði verk meira en fimmtíu mismunandi listamanna. Í stað þess að skapa verk í þeirra anda og bjóða þau til sölu undir þvi yfirskini að um áður óþekkt verk væri að ræða hermdi hann nákvæmlega eftir þekktum verkum. Árið 2010 komst upp um kauða eftir að gerð var efnagreining á litum í málverki eftir hann og í ljós kom að þar var um að ræða málningu sem alls ekki hafði verið til þegar Max Ernst Max Ernst og Fernand Léger voru að vinna en Wolfgang kóperaði gjarnan verk þeirra.

Tom Keating er talinn hafa falsað allt að 2000 verk svo hann hefur sjaldan verið aðgerðalaus um ævinni. Markmið hans var, að eigin sögn, að fletta ofan spillingunni á  listaverkamarkaðnum. Hann kvaðst fyrirlíta listaverkasala og hann faldi iðulega smávægilegar tímaskekkjur eða orð hér og þar í verkum sínum og beið þess að einhver tæki eftir því. Hann var handtekinn árið 1977 en þá hafði hann dælt inn á markaðinn ótal verkum og sagði eftir Samuel Palmer. Svo mörg voru verkin að ekki var mögulegt annað en að listaverkasalarnir vöknuðu. Í dag seljast fölsuð verk eftir Tom Keating dýrum dómum vegna þess hve frægur hann er af endemum.

Eric Hebborn var myrtur í Róm.

Falsari myrtur

Fölsuð teikning eftir Eric Hebborn.

Eric Hebborn náði að framleiða á sinni tíð um það bil helming þess sem Tom Keating afkastaði. Hann var hæfileikaríkur teiknari og sérhæfði sig í teikningu sem hann sagði eftir gömlu meistarana, menn eins og Rembrandt og Van Dyck. Hann lagði mikla vinnu í falsanirnar, varð sér út um gamlan pappír og bjó til blek með sömu aðferðum og notaðar voru þegar þessir menn voru á dögum. Flett var ofan af svikstarfsemi hans árið 1978 þegar safnvörður tók eftir misfellu í pappír í einni af teikningum hans. Hann var myrtur í Róm árið 1996. Fannst höfuðkúpubrotinn liggjandi úti á götu og talið var að hann hafi verið barinn með hamri í höfuðið.

Mark Landis falsaði til að njóta aðdáunar og viðurkenningar.

Mark Landis komst upp með iðja sína í rúm þrjátíu ár en ólíkt flestum falsaði hann ekki verk til að verða sér úti um peninga eða leita hefnda. Hann falsaði málverk og forngripi til að njóta viðurkenningar og aðdáunar því hann gaf verk sín til safna og góðgerðastofnana. Hann var kallaður mannvinur og naut mikillar virðingar og aðdáunar fyrir vikið. Árið 2010 kom maður sem var að vinna við skráningar á safni eftir að eitthvað var skrýtið við verk sem hann hafði gefið og þá komst upp um kauða. Hann var hins vegar aldrei ákærður því hann hafði tæknilega ekki framið glæp þar sem hann var ekki að svíkja fé af fólki með fölsunum sínum.

En hvort sem menn er drifnir áfram af hefndarþorsta, peningagræðgi eða löngun til að njóta viðurkenningar eru listaverkafalsanir hvorki betri né verri en önnur svikastarfsemi. Þó virðist ákveðinn hópur fólks hrífast af ófyrirleitnum svikahröppum. Í stað þess þolendur þeirra njóti samúðar er hlegið að þeim skaða sem þeir verða fyrir og hann talinn þeim mátulegur. Gallinn er bara sá að burtséð frá Þórðargleði sumra er það í raun allt mannkynið sem tapar vegna þess að stórkostleg list auðgar alla og er okkar að njóta. Að vita að listheiminum er ekki treystandi skapar óöryggi fyrir listamenn, listunnendur, listasöfn og þá sem á eftir okkur koma og vilja njóta sannrar listar. Auk þess er eitthvað bæði lúalegt og lélegt við það að vilja nýta sér hugverk og sköpunargáfu annarra til að svíkja og ljúga.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.