Gengið um ljóðheima skáldkvenna í Reykjavík

Verið velkomin í ókeypis kvöldgöngu fimmtudaginn 13. ágúst þar sem gengið verður um ljóðheima skáldkvenna í miðbæ Reykjavíkur.

Auglýsing

Vigdís Hafliðadóttir, vísnasöngvari og uppistandari, leiðir kvöldgöngu í miðbæ Reykjavíkur fimmtudagskvöldið 13. ágúst. Þessi bókmenntaganga er byggð í kringum sögu og raddir kvenna og var upphaflega búin til sem samvinnuverkefni Borgarbókasafnsins og Kvenréttindafélags Íslands í tilefni af kvennári.

Gangan er hugsuð sem sveigjanleg bókmenntaganga sem hægt er að framkvæma sem víðast. Hún byggir á því að velja nokkra lykilstaði sem flestir bæir eiga sér og tengja þá við texta skáldkvenna sem kalla fram ákveðin sjónarhorn, meðal annars texta eftir rithöfundana Steinunni Sigurðardóttur, Elísabetu Jökulsdóttur og Fríðu Ísberg. Hérna er Vigdís búin að velja staðina og mun leiða okkur milli þeirra á sinn einstaka hátt.

Lagt verður af stað frá Borgarbókasafninu Grófinni, Tryggvagötu 15 og endað á sama stað þar sem Vigdís mun taka lagið ásamt Önnu Grétu Sigurðardóttur píanóleikara meðan göngufólk nýtur léttra veitinga.

Gangan, sem fer fram á íslensku, hefst kl. 20:00 og tekur um 1 og ½ klukkustund.

Hún er hluti af viðburðaröðinni Kvöldgöngur en að henni standa Borgarbókasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafn Reykjavíkur og Listasafn Reykjavíkur.

Kvöldgöngurnar eru ókeypis og fara fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:00 – 21:30 yfir sumarmánuðina.

Fylgjast má með dagskránni á heimasíðum safnanna og á Facebook síðunni Kvöldgöngur: https://www.facebook.com/kvoldgongur og heildardagskrá Kvöldganga 2026 hér: https://borgarbokasafn.is/kvoldgongur