Bestu ástarsögu kvikmyndanna

Ást er eitt af tannhjólunum í gangverki lífsins og erótíkin kyndir elda hennar. Kvikmyndir segja sögur og gera skil sammannlegri tilveru. Ástin getur verið ljúf, sár, mjúk og heit. Nokkrar bíómyndir standa upp úr vegna þess að ástarsenurnar í þeim er með þeim bestu sem nokkru sinni hafa skreytt hvíta tjaldið.

Hvíta höllin

White Palace frá árinu 1990 fjallar um Max Baron, auglýsingahönnuð, sem  missir konu sína. Hann er einmana og á erfitt með að tengjast öðrum. Hann kynnist þjónustustúlku á lélegri hamborgarabúllu þegar hann ákveður að kvarta yfir því að sex borgara vantar upp á pöntun í steggjaparí tekst hann á við þjónustustúlkuna, Noru Baker. Það neistar á milli þeirra og þegar þau hittast á bar seinna um kvöldið geta kynni þeirra ekki farið nema á einn veg. Ástarsenan þegar þau sofa saman í fyrsta sinn er meðal allra erótískustu atriða kvikmyndasögunnar.

Níu og hálf vika

Nine and a Half Week frá árinu 1986 segir sögu ástarsambands milli karls sem ekki er tilbúinn að gefa sig allan og konu sem heillast af honum. Ólíkt, Anastasiu í Fifty Shade of Grey, skilur Elizabeth McGraw fljótt að þótt John Gray sé heillandi og áhugaverður bólfélagi er hann ekki líklegur til að uppfylla tilfinningalegar þarfir hennar. Hún á því í eldheitu kynferðissambandi í níu og hálfa viku en hefur að þeim loknum gert sér ljóst hvað hún vill og þótt hann reyni í örvæntingu að nálgast hana kveður þessi sjálfstæða, heilbrigða kona fullviss um að annað og betra bíði.

Ástin þekkir engin landamæri

Monsters Ball fjallar um hvernig fordómafullur fangavörður öðlast víðsýni og verður ögn meiri maður vegna ástarinnar. Hank Grotowski kynnist eiginkonu fanga sem hann hefur séð tekinn af lífi og ástir takast með þeim. Þarna koma saman tvær einmana og særðar sálir og þeim tekst að líkna og lækna hvor aðra. Kynlífssenur í þessari mynd eru einstaklega erótískar og vel unnar því undir niðri krauma tilfinngar eins og ást, virðing, huggun, tengsl og nánd.

Hinn ljúfsári endir  

End of the Affair rekur ástarævintýri rithöfundarins Maurice Bendrix og Söruh Miles í seinni heimstyrjöldinni. Hún er eiginkona mikilvægs stjórnmálamanns og þegar hún hittir Maurice í London dragast þau ómótstæðilega hvort að öðru. Þjóðverjar láta sprengjum rigna yfir London og þegar íbúð Maurice springur í loft upp eftir ástarfund þeirra tveggja slítur Sarah sambandinu. Það tekur Maurice smátíma að komast að hvers vegna en þessi saga Graham Greene er einstaklega falleg og leikur Julianne Moore og Ralph Fiennes gerir hana bæði spennandi og erótíska.

Útskrift af nokkrum sviðum

The Graduate frá árinu 1967 er án efa ein af erótískustu kvikmyndum allra tíma. Hún segir frá því hvernig Benjamin Braddock, nýútskrifaður úr háskóla, er tældur af vinkonu foreldra sinna, frú Robinson. Fljótlega verður honum ljóst að ástarsamband þeirra krefst meira af honum en hann er tilbúinn að gefa eftir og undir öllu hljómar dásamleg tónlist Simon & Garfunkel. Þessi er klassísk, falleg og ein af þeim sem allir verða að sjá.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu  núna skrifar.