Hógvær og gefandi listamaður

Ben Kingsley þykir einstakur fagmaður og ákaflega gefandi. Til þess er sérstaklega tekið hve styðjandi og góður hann hefur verið gagnvart yngri leikurum sem eru að stíga sín fyrstu skref í bransanum. Ben er 83 ár og enn í fullri vinnu. Hann leikur eitt aðalhlutverkanna í sjónvarpsþáttum gerðum eftir bókum Richards Osman, The Thursday Murder Club, er í aukahlutverki í bandarísku þáttunum, Young Washington og sömuleiðis í The Old Stories; Moses. Auk alls þessa komu út á síðasta ári tvær kvikmyndir sem hann lék í.

Ben fékk Óskarsverðlaun fyrir túlkun sína á Gandhi.

Hann segir að enn sé skemmtilegt að standa fyrir framan myndavélin og stundin frá því kallað er „action“ og þar til heyrist „cut“ sé, hversu undarlega sem það hljómar, ein sú mest prívat sem hugsast geti. Ekkert sé á milli hans og myndavélarinnar og enginn að dæma hann. Eftir á þegar hann horfi á sjálfan sig á hvíta tjaldinu eða skjánum fyllist hann ævinlega undrun og hugsi með sér: Þetta er ekki ég en ég gerði þetta.

Auglýsing

Í bransanum hefur hann orð á sér fyrir að vera fagmaður fram í fingurgóma og lipur og þægilegur í samstarfi. Hann gefur mikið af sér og leggur sig ævinlega fram sama hversu margar tökur leikstjórinn biður um. Hann hefur jöfnum höndum leikið í kvikmyndum og á sviði og hefur oft talað um að munurinn á vinnunni í leikhúsinu og fyrir framan myndavélina sé helst sá að í leikhúsinu verði menn að leika en í fyrir kvikmyndina að vera. Hann segir einnig að margt sé hægt að læra varðandi fagið en margt sé undir leikaranum komið, hans innsæi og eðlishvöt. Það liggi í hlutarins eðli að erfitt sé oft að greina á milli hlutverksins og raunveruleikans og leikari sé ávallt að safna í sarpinn, þ.e.a.s. að fylgjast með fólki, skoða viðbrögð, kæki og fas og margt af því rati inn í persónuuppbyggingu leikarans síðar meir.

Með eiginkonu sinni Danielu Lavender

Lærði af jarðbundnum föður

Ben Kingsley fæddist 31. desember 1943 í Yorkshire á Englandi. Hann var skírður Krishna Bhanji en foreldrar hans voru þau Rahimtulla Harji Bhanji, kenískur læknir af indverskum ættum, og Anna Lyna Mary Bhanji, ensk fyrirsæta. Ben segir að faðir hans hafi verið ákaflega jarðbundinn maður og hann hafi lært af honum að hafa báða fætur á jörðinni og slaka á. Hann byrjaði að leika strax á táningsaldri og tók sér nafnið Ben í viðurkenningarskyni við föður sinn en hann hafði verið kallaður því nafni í skóla.

Hann segir að sjálfstraust og tiltekin hæfni hafi mikið með það gera hversu vel fólki gangi að leika og vinna að leiklist. Ben lék með Konunglega breska Shakespeare leikhópnum í mörg ár en hlaut síðar fastráðningu við breska Þjóðleikhúsið. Árið 1977 héldu menn þar á bæ til Bandaríkjanna og settu Nicholas Nickleby upp á Broadway. Það var upphafið að ferli Kingsleys í kvikmyndum og árið 1981 tók hann að sér aðalhlutverk í myndinni um Ghandhi. Hann hlaut Óskarsverðlaun fyrir frammistöðu sína og í kjölfarið fylgdu margar góðar myndir m.a. Betrayal, Maurice, Without a Clue og Murderers Among Us. Hann var tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í Bugsy og aftur fyrir Schindler’s List. Gagnrýnendur höfðu þá á orði að fáir eða engir túlkuðu betur sögulegar persónur en Ben Kingsley. Hann næði að lifa sig inn í hlutverk sín og skynja tíðarandann og þá tíma sem persónurnar lifðu og hræðust í.

Í hlutverki sínu í The Thursday Murder Club.

Elísabet II Englandsdrottning sæmdi hann riddaranafnbót 19. mars árið 2002 og síðan hefur hann haft réttinn til að kalla sig Sir. Ben hefur sagt í viðtölum að nafnbótin sé eins og faðmlag frá Englandi. Þegar hann sé í Bandaríkjunum að vinna hiki fólk ekki við að koma til hans og hrósa honum og þakka fyrir störf hans. Heima á Englandi sé öðruvísi tekið á málum og ekki eins mikið um viðbrögð. Titillinn sé því velkomin viðurkenning á að landar hans kunni að meta það sem hann hefur gert.

Kingsley á son og dóttur, Thomas og Jasmine, með leikkonunni Angelu Morant og tvo syni, Edmund og Ferdinand, með seinni konu sinni Alison Sutcliffe. Hann er í dag kvæntur Danielu Lavender en hún er fjórða eiginkona hans. Hann var giftur Alexöndru Christmas í tvö ár, frá 2003-2005. Aðspurður að því hvort hann iðrist einhvers segir hann svo ekki vera. Líf hans sé gott og fortíðin hafi skilað honum á þann stað sem hann er á í dag og hvers vegna að sjá eftir ferðinni þegar mönnum líði vel á leiðarenda. Núið sé allt sem menn hafi og hann nýtur þess að ganga um garðinn sinn, elda og sinna hænunni sinni.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.