Breski leikarinn Tim Curry lést 25. ágúst síðastliðinn. Hann var búsettur í Los Angeles og glímdi við afleiðingar heilablóðfalls sem hann fékk árið 2012. Þótt hann gæti ekki unnið ferðaðist hann um og talaði á ráðstefnum og kom fram í spjallþáttum og ræddi um sjúkdóminn, einkum til að vara aðra við byrjunareinkennum hans. Tim er einkum minnst fyrir skrautlegt persónugallerí, sérstæðra karaktera sem hann virtist snillingur í að túlka.
Tim var 80 ára, eins og Dolly Parton sem lést 14. ágúst. Hann fæddist í Bretlandi 19. apríl árið 1946. Hann vakti fyrst athygli í uppfærslu á Hárinu í West End í London árið 1968 og frammistaða hans þar leiddi til þess að honum var boðið hlutverk Dr. Frank-N-Furter í sviðsuppfærslum á The Rocky Horror Picture Show í London, Los Angeles og New York. Þegar að því kom að gera kvikmynd eftir söngleiknum kom enginn annar til greina í hlutverkið. Tim sló í gegn og myndin reyndar líka. Hún þykir í dag klassísk og nýjar kynslóðir uppgötva hana reglulega.
Þetta var ódýr mynd eða svokölluð „low-budget“ og saga hennar því nokkurs konar öskubuskusaga sem höfðar auðvitað ekki síður til áhorfenda. Það eru nokkur dæmi um kvikmyndir gerðar af ástríðu en fyrir mun lægri upphæðir en almennt teljast ásættanlegar í kvikmyndaiðnaðnum í Bandaríkjunum sem óvænt slá í gegn, hljóta verðlaun og viðurkenningar og umfram allt skila framleiðendum stjarnfræðilegum gróða.
Hálfrar aldar kvikmynd enn sýnd
Allir þekkja líklega söguþráðinn, Brad og Janet leita skjóls í kastala eftir að bíllinn þeirra bilar. Þar mætir þeim sérstæður gestgjafi Dr. Frank-N-Furter, klæðskiptingur og vísindamaður sem er hvorki meira né minna en að skapa mann. Húsið er auk þess fullt af þjónustufólki og aðstoðarmönnum sem eru vægast sagt undarlegar verur enda frá annarri plánetu. Enn er verið að sýna The Rocky Horror Picture Show í kvikmyndahúsum um allan heim og þessi rétt ríflega hálfrar aldar gamla mynd laðar alltaf að sér áhorfendur.
Í kjölfarið fylgdu mörg kvikmyndahlutverk og Tim var áfram vinsæll söngleikjaleikari og lék m.a. í Spamalot þegar það var sett upp á Broadway. En rifjum upp nokkur þekktustu hlutverk þessa sérstæða og skemmtilega leikara. Kvikmyndin Legend kom út árið 1985 með Tom Cruise í aðalhlutverki. Á móti honum lék Tim Curry óvenjulega alvarlegur. Ridley Scott leikstýrði þessari myrku fantasíu og Tim tókst á við hvorki meira né minna en myrkrahöfðingjann sjálfan, með hornum, hala og hófum. Sagt er að fimm og hálfa klukkustund hafi tekið dag hvern að koma honum í gervið. Myndin í heild var frekar misheppnuð og dró að sér fáa áhorfendur en fékk engu að síður margar tilnefningar fyrir tónlist og búninga- og gervahönnun.
Stal senunni í Annie
Árið 1982 lék Tim, Annie, barnamynd gerða eftir myndabókinni, Little Orphan Annie eftir Harold Gray. Höfundur sögunnar fékk aftur á móti innblástur úr gömlu kvæði frá nítjándu öld en sagan af Annie sem var ættleidd af ríkum milljarðamæringi, Daddy Warbucks, er ein í röð margra er voru vinsælar um svipað leyti eða 1924. Íslendingar muna eflaust best eftir Pollyönnu. Harold Gray var myndasöguhöfundur og sagan af Annie fór að birtast í New York Daily News í formi hálfsíðu teiknimyndasögu.
Í myndinni lék Tim, Rooster, andstyggilegan frænda Miss Hannigan, kerlingar sem er andstyggileg við Annie. Carol Burnett lék kerlinguna. Hann og kærasta hans plana að ræna Annie og krefjast lausnargjalds af milljarðamæringnum föður hennar. Það var hreinlega dásamleg skemmtun að horfa á þessa mynd með börnunum sínum því Tim hreinlega fór á kostum í hlutverkinu og skapaði án efa eftirminnilegasta karakter myndarinnar.
Var það butlerinn sem gerði það?
Árið 1985 kom út kvikmyndinni Clue létt morðgáta byggð á samnefndu borðspili. Tim lék mann að nafni Wadsworth, butler á stóru herrasetri í Nýja Englandi og auðvitað þurfa áhorfendur að gera upp við sig hvort butlerinn hafi framið morðið. Hér er á ferð klassísk morðgáta með öllum þeim snúningum og uppákomum sem þeim fylgja. Hópur gesta kemur saman að herrasetrinu, svo er framið morð og allir liggja undir grun. Sú nýbreytni að gera þrjú mismunandi eintök af myndinni sem hver hafði sinn endi þótti bæði skemmtileg og til þess fallin að laða að fleiri áhorfendur því sumir vildu sjá allar útgáfur. Líkt og The Rocky Horror Picture Show hefur Clue fengið cult-stöðu þ.e.a.s. myndin nýtur mikilla vinsælda í ákveðnum hópum og er enduruppgötvuð af nýjum kynslóðum ár hvert.
Tíundi áratugurinn byrjaði vel hjá Tim því kvikmyndin It sló í gegn. Þar lék hann illmenni eða kannski réttara sagt illt afl sem verið hefur á sveimi frá örófi alda og tekur sér reglulega bólfestu í manneskjum. Að þessu sinni í trúðnum Pennywise. Myndin er gerð eftir sögu Stephen King og þótt söguþráðurinn sé vissulega spennandi er hann ofurlítið langsóttur. Frammistaða Tims heldur myndinni hins vegar uppi og enn geta hryllingsmyndaunnendur notið þess að finna kaldan hroll hríslast niður bakið við áhorf á þessari ræmu þökk sé honum.
Tim kom einnig oft fram í sjónvarpsþáttum meðal annars Charlie’s Angels og margir muna eftir honum úr Home Alone 2. Undanfarin ár hefur hins vegar lítið borið á þessum skemmtilega leikara enda glímdi hann við mikla vanheilsu. Hann notaði hjólastól og átti í erfiðleikum með margar daglegar athafnir. Til að vara aðra við og vekja athygli á sjúkdómnum kom hann fram á ráðstefnum og í spjallþáttum. Eitt af því sem hann benti á var: „Daginn áður en ég fékk heilablóðfall reykti ég þrjá pakka af Marlboro Reds. Eg mun ekki gera það aftur.“ Hann þótti mjög orðheppinn og einstakur húmoristi og setningar sem þessar því dæmigerðar fyrir hann. Einhverju sinni var einnig haft eftir honum að fólk kæmi enn upp að honum og segði að það hefði ekki getað sofið eftir að hafa horft á hann í It. „Ég get sáralítið gert í því,“ sagðist hann venjulega svara.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







