Búum til okkar eigin jógúrt
1 l mjólk
1 msk. hrein jógúrt
Hitið mjólkina að suðu og kælið hana þar til hún er heit en ekki brennheit. Setjið jógúrtina út í og hrærið vel. Lokið pottinum og hyljið hann með þykkum klút í fimm klukkutíma við stofuhita á meðan jógúrtin er að gerjast. Fjarlægið klútinn og kælið vökvann, sem nú er orðinn að jógúrt, í ísskáp.
Svo má setja ávexti, múslí eða korn saman við og borða strax eða nota til matargerðar eða í bakstur.