Stundum langar mann í eitthvað gott. Við fundum þessa uppskrift af bökuðum hvítmygluosti á vef Kjarnafæðis. Hvað er huggulegra á síðkvöldi en að slá í þennan rétt og fá sér kannski svo sem eitt glas af víni með. Hér er það sem tilþarf.
- 1stk Auður eða annar hvítmygluostur
- nokkrar sneiðar hvítlaukur
- 50 ml góð ólívuolía
- 1 msk hindberjasulta
- 1 askja fersk hindber
- stökkt kex eða brauð
Aðferð:
Opnið ostpakka en hafið samt ostinn enn í pakkningunni, stingið nokkur göt á toppinn á ostinum, hellið nokkrum dropum af ólívuolíu yfir ostinn. Stingið svo garðablóðberginu og fínt saxaða hvítlauknum rétt inní götin, nýmuldnum pipar stráð yfir og þá er ostinum pakkað aftur saman einsog í upprunanlegu pakkningunni. Bakið við 170 gráður í 30 mín, þá er osturinn settur á disk og opnaður. Skreytið með berjunum og berið fram með sultunni, góðu brauði eða kexi.