Ertu sek/ur um að verða 67 ára?

Eldri borgarar og öryrkjar sem treysta eingöngu á lágar bætur frá
almannatryggingum lifa við gríðarlega fátækt og bágborin kjör. Þeir óttast
sérstaklega að verða 67 ára því þá lækka bætur þeirra enn frekar þegar þeir
færast yfir á ellilífeyri. Oft eru þetta konur sem unnu árum saman sem
heimavinnandi húsmæður og eiga engan lífeyrissjóð.

Flokkur fólksins hefur lengi barist fyrir því að þessi hópur fái a.m.k.
jólabónus eins og aðrir öryrkjar, en þrátt fyrir lágan kostnað hafa
stjórnvöld hafnað því ítrekað. Það er vægast sagt dapurlegt að stjórnvöld
skuli ekki sjá sóma sinn í að aðstoða þá allra verst settu um hátíðirnar.
Maður spyr sig hvar kosningaloforð stjórnarflokkana um bættan hag eldra
fólks séu núna?

Hækk­um fjár­lög um bara 138 millj­ón­ir kr. og greiðum verst setta aldraða
fólk­inu okk­ar 66.381 kr. skatta- og skerðing­ar­lausa ein­greiðslu í
des­em­ber eins og ör­yrkj­ar fá.

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingflokksformaður Flokks fólksins.

Ritstjórn nóvember 28, 2023 14:12