Fyrirlestraröð RIKK tileinkuð öldrun

Líney Úlfarsdóttir, sálfræðingur.

Hádegisfyrirlestraröð RIKK á haustmisseri 2019 er tileinkuð öldrun og eru fyrirlestrarnir haldnir í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins. Næsti fyrirlestur er á morgun, fimmtudaginn 7. nóvember kl. 12:00 – 13:00. Það er fyrirlestur Líneyjar Úlfarsdóttur sálfræðings nefnist: Krosssaumur eða rauðir sokkar? Spurning sem er bæði sérkennileg og mjög forvitnileg. Líney spyr hvort til sé rétt leið til að eldast eða röng og veltir upp hvernig þjónustu við aldraða hefur tekist að aðlagast breyttum veruleika þar sem öldruðum hefur fjölgað gífurlega. Spurt er hvort þjónustan geri ráð fyrir að öldruðum fjölgi af öllum kynjum eða hvort dugi að bjóða upp á krosssaum og útskurð til að sjá fyrir félagsþörf þessa hóps. Í kynningu á fyrirlestrinum segir: “Svokallað eftirlaunatímabil lengist og gerir það að verkum að við sem samfélag verðum að reikna með aukinni fjölbreytni, kröfum og draumum þessa hóps til að auka lífsgæði.”

Líney Úlfarsdóttir hefur allan starfsaldur sinn á Íslandi unnið hjá Reykjavíkurborg og lengst af í öldrunarmálum. Starfsvettvangur hefur verið einstaklingsvinna með fram störfum heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu auk ráðgjafar til starfsfólks og stofnana í öldrunargeiranum. Líney hefur einnig sinnt stundakennslu á sviði öldrunarsálfræði við Háskóla Íslands.

Fyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis.

Hádegisfyrirlestraröð RIKK á haustmisseri 2019 er tileinkuð öldrun. Í fyrirlestraröðinni munu fyrirlesarar úr mismunandi greinum fjalla um viðfangsefnið út frá ólíkum sjónarhornum.

Fyrirlestraröðin er haldin í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands.

Ritstjórn nóvember 6, 2019 16:33