Gamlar stúlkur

Inga Dagný Eydal.

Inga Dagný Eydal hjúkrunarfræðingur skrifar

Í morgun hlustaði ég á aldeilis frábæran þátt úr þáttaröð um breytingaskeið kvenna. Að vísu var hann endurfluttur en ég hafði greinilega misst af þessu í frumflutningi. Í hjarta mér varð ég þakklát fyrir það að til skuli vera útvarpsstöð sem lítur á miðaldra og eldri konur sem manneskjur en ekki afgangsstærð, bagga á heilbrigðiskerfinu eða eitthvað þaðan af verra. Ekki spillti fyrir að þátturinn var bráðskemmtilegur og stútfullur af bráðgáfuðum og mögnuðum eldri konum.

Stoltar gamlar ljónynjur

Stundum hef ég nefnilega á tilfinningunni að þessi hópur sé hreinlega ekki í tísku. Eldri konur sem eru auðvitað jafn misjafnar og þær eru margar, guði sé lof, en eiga það kannski sameiginlegt að vera heldur hnarreistari en formæður okkar þótt þær hefðu auðvitað fulla ástæðu til þess líka. Þessar konur eru mikilvægar samfélaginu, eru fjárhagslega sjálfstæðar og stoltar gamlar ljónynjur. Ég upplifi þetta að minnsta kosti svona, verandi 58 ára gömul, löngu búin með mitt breytingaskeið, amma með ör og hrukkur sem tilheyra mínum aldri — en sannarlega með 18 ára sjálfsvitund eins og ég held að við höfum flest eftir að þeim aldri er náð.

Og það er býsna stórt í þessari 18 ára ef henni er misboðið og ekki síst ef henni finnst að ungt fólk sjái í henni konu sem ekki þurfi að taka mark á. Miðaldra hnussið er alltaf tiltækt og engin feimni lengur yfir því að segja meiningu sína á vandaðri íslensku. Það eru kannski forréttindi okkar gráhærðu að hafa litlar áhyggjur af því hvað fólki finnst um það sem við erum og segjum. Við viljum að allt unga fólkið í samfélaginu sýni okkur kurteisi og virðingu, ekki bara börnin okkar og barnabörnin.

Við erum ekkert alltaf viskan uppmáluð þrátt fyrir aldurinn, en við þurfum þess auðvitað ekkert frekar en aðrir. Við megum vera sérvitrar og utan við okkur án þess að glata virðingunni.

Stúlkan hið innra komin til að vera

Einn ömmustrákurinn minn fullyrðir stoltur að ég sé ekki gömul, ég sé tveggja ára rétt eins og hann. Ein ömmustelpan sagði mér um daginn þegar ég setti upp bleika glimmerhárkollu að þetta „sé eiginlega bara fyrir stúlkur“. Það var hennar fallega leið til að segja mér að haga mér samkvæmt aldri, aldri sem í hennar huga er kannski óræður en alveg örugglega ekki „stúlka“. Hún á eftir að uppgötva að „stúlkan“ innra með henni er komin til að vera og verður ekki gömul ef hún fær að leika sér út ævina.

Það er mikil sjálfsvirðing fólgin í því að taka sig ekki of hátíðlega, leyfa okkur að leika okkur en gera það ekki að forréttindum þeirra sem yngri eru. Það inniber líka að halda áfram að horfa á heiminn með augum barnsins innra með okkur, vera forvitin og alltaf fús til að læra eitthvað nýtt. Það hjálpar líka til við að viðhalda sveigjanlegum huga og sálfræðilegum liðleika sem er algjörlega nauðsynlegt að þjálfa þegar aldurinn færist yfir. Um leið og við stirðnum hugarfarslega er voðinn vís og það er mun meira aldursmerki en stirðir liðir eða vöðvar.

Sjálfri finnst mér gott að hvíla í því að vera með 58 ár af mistökum, sorgum, bulli, hamingju og reynslu í farteskinu en vera stundum líka tveggja ára, leika með hinum krökkunum, vera ýmist gigtveik í jogging eða skvísa í sparikjól og njóta þess að upplifa öll tilbrigði lífsins.

Menning heltekin af æskudýrkun

Ég er afar glöð yfir að breytingaskeiðið mitt sé yfirstaðið og að ég þurfi ekki að spá í barneignir, hælaskó eða hvort ég sé nógu sæt. Ég er hins vegar marktæk og orð mín og hugsanir skipta máli. Aldurinn sem við mælum í árum er óvéfengjanlegur, en svo stjórnum við því sjálf hvort „innri stúlkan“ fær að eiga rödd líka. Ég leyfi mér að fullyrða að lífið er litríkara með henni.

Sjálf Oprah Winfrey segir: „Við lifum í menningu sem er heltekin af æskudýrkun og reynir sífellt að telja okkur trú um að ef við séum ekki ung, ljómandi og kynþokkafull, þá skiptum við ekki máli. Ég neita að láta kerfi eða menningu eða afbakaða sýn á raunveruleikann segja mér að ég skipti ekki máli. Ég veit að aðeins með því að gangast við því hver og hvað þú ert geturðu farið að upplifa lífið til fulls. Sérhvert ár ætti að kenna okkur eitthvað dýrmætt. Hvort þú lærir eitthvað er eiginlega undir þér komið.“

Inga Dagný Eydal nóvember 1, 2021 07:00