Sjónvarpsþættirnir The Block eða Húsaröðin urðu til árið 2003. Hugmyndin var einföld, að fá fimm pör til að keppa í að gera upp og selja íbúðir og hús í Ástralíu. Þetta sló í gegn og önnur þáttaröð var send út árið 2004 en svo duttu þeir niður en sneru aftur árið 2010 eftir sex ára hlé. Þá var ekki að sökum að spyrja þeir slógu rækilega í gegn, ekki hvað síst vegna þess að nýr stjórnandi Scott Cam náði að heilla heimsbyggðina og margskonar drama lífgaði upp á tilveru þátttakenda milli þess sem þeir hömuðust við að sparsla og mála.

Parið Chantal og Wyatt móðgaðist hressilega í nýjustu þáttaröð The Block og hótuðu að fara heim. Ástralir bíða í ofvæni eftir að heyra hvað verður.
Nýjasta þáttaröðin er nýhafin og nú þegar hafa orðið uppákomur. Eitt parið var sakað um að svindla og að fara langt fram yfir fjárheimilidir í gerð fyrsta herbergisins og nú hóta þau að hætta og fara heim. Það hefur einu sinni áður gerst í Húsaröðinni. Það par hvarf á braut en nú bíða áhorfendur og ástralskir fjölmiðlar í ofvæni eftiir að frétta hvernig spilast úr spilunum. Nei, engum þarf að leiðast sem horfir á The Block en þessir þættir hafa verið sýndir í Síminn Premium og líklega ekki langt að bíða þess að íslenskir áhorfendur fái að kynnast þessum nýju og hressu keppendum.
Auðvitað eru þetta ekki einu áströlsku sjónvarpsþættirnir sem slegið hafa í gegn á heimsvísu. Þyrnifuglarnir voru geysivinsælir hér og raunar um allan heim og hið sama má segja um nágranna. Það er þó eitthvað alveg sérstakt við Húsaröðina. Þarna fylgjumst við með misgeðfelldu fólki leggja sig allt fram um byggja og hanna fullkomin heimili. Sumir eru algerlega óvanir allri byggingavinnu og kunna ekkert til verka meðan aðrir hafa reynslu eða jafnvel iðnmenntun. Oft halda þeir keppendur sérþekkingu sinni leyndri og í hvert sinn sem það kemst upp veldur það úlfúð, enda standa þeir þess vegna betur að vígi en þeir sem enga reynslu hafa. Í nýjustu seríunni er, samkvæmt áströlsku pressunni, einmitt eitt slíkt par, Courtney og Sev, bestu vinkonur frá Sidney, sú fyrrnefnda er byggingarstjóri að atvinnu og hefur starfað við margs konar byggingar og sú síðarnefnda er innanhússarkitekt. Það kom áhorfendum því ekkert á óvart þegar þær unnu fyrsta herbergið.

Mitch og Mark unnu The Block árið 2021. Þeir nutu mikilla vinsælda árið 2019 og komu aftur 2021.
Stærstu hneykslin og minnsti gróðinn
Viku eftir viku sogast fólk að sjónvarpstækjunum, dáist að sínum keppendum og ergir sig yfir svindlinu og svínaríinu í kringum þá sem það kann ekki við. Alls konar bandalög myndast, vinátta og vinslit, óvinátta og hörð samkeppni og allt þar á milli. Já, þetta er sko sjónvarpsefni sem bragð er að. Þáttaraðirnar enda svo á að heimilin eru boðin upp og allt umfram ásett verð á húsið fá keppendur að eiga fyrir sína miklu vinnu og það getur verið umtalsvert fé en lukkan er fallvölt þar eins og annars staðar og stundum seljast húsin alls ekki og stundum er tap á þeim. En keppendur halda áfram að sækjast eftir að komast í Húsaröðina og á meðan er auðvitað haldið áfram.
Í gegnum tíðina hefur mörgum keppendum tekist að byggja upp gullfalleg heimili og þótt smekkur manna sé vissulega misjafn á þessu sem öðru eru nokkur pör sem beinlínis standa upp úr. Allir eiga auðvitað sín uppáhöld og ekki vert að tína til einhverja umfram aðra en skoðum nokkur stærstu hneykslin í sögu Húsaraðarinnar.
Daylesford-uppboðsfíaskóið (2025): Líklega það sem flestir telja verstu útkomu þáttanna frá upphafi. Aðeins eitt hús seldist með hagnaði á uppboðinu, annað fór á undirverði enda ásett verð mjög hátt. Keppendur kusu flestir að draga hús sín til baka fremur en að selja þau undir kostnaðarverði og mörg þeirra voru lengi að seljast. Þau hafa hins vegar verið að detta út af markaðnum eitt og eitt og sumir keppendur fengið einhvern hagnað.

Mimi og félagi hennar, Kristian. Hún var sökuð um að daðra opinskátt við annan keppanda, Brad sem varð til þess að sambýliskona hans yfirgaf þættina.
Mimi og Brad skjóta sér hvort í öðru (2024): Áhorfendum þótti lítið til koma þegar Brad nokkur og Mimi hvort úr sínu keppendaparinu fóru að gefa hvort öðru auga og daðra nokkuð áberandi við hvort annað. Þetta endaði með sambýliskona Brads, Kylie, hætti í þáttunum. Hún hafði heyrt Brad segja eitthvað mjög óviðeigandi við Brad, við fengum ekki að vita hvað, en hann var farinn að fylgja Mimi á Onlyfans. Þáttastjórnendur fengu Kylie til að koma aftur og klára húsið með Brad en samband þeirra hékk á bláþræði þegar þáttunum lauk.
Þetta var ekki eina hneykslið árið 2024: Adrian Portelli, ástralskur auðkýfingur keypti öll húsin á uppboðinu og valdi hvaða par stæði uppi sigurvegari. Hann fór í gegnum fasteignasala og enginn vissi fyrr en eftir á að sami maður væri að baki tilboðunum. Það voru svo systurnar Maddy og Charlotte sem hann valdi að kaupa af fyrir hæsta verð og þar með tryggja þeim sigurinn. Þetta olli mikilli óánægju og áhorfendum þótti ekki sanngjarnt að einn maður gæti stýrt sigrinum á þennan hátt og margir töldu systurnar alls ekki verðugustu sigurvegarana.

Systurnar Eliza og Liberty lentu í alvarlegum útistöðum við annan keppanda, Kirsty.
Árið 2023 varð togstreita milli tveggja keppenda, Kristy og Elizu svo mögnuð að talað var um „the feud“. Eliza keppti ásamt systur sinni Liberty og Kirsty þoldi hvoruga þeirra. Hún hélt því fram að þær fengju sérmeðferð hjá starfsfólki og dómurum. Deilurnar náðu hámarki þegar Eliza sakaði Kirsty og eiginmann hennar Brett um að skapa eitrað andrúmsloft í kringum sig og uppástóð að þau kæmu illa fram við iðnaðarmennina sem ynnu fyrir þau. Hún sagði einnig að þeim hefði tekist að græta kvikmyndatökumennina og starfsfólk sjónvarpsstöðvarinnar. Slagurinn hélt áfram eftir að þættirnir fóru í sýningu og þær Kirsty og Eliza mættu reglulega í fjölmiðla til að tala illa um hina.
Par lagði á flótta eftir tveggja daga dvöl í Húsröðinni árið 2022: Þau hétu Elle og Joel, hún er áhrifavaldur en hann fyrrum fótboltastjarna í Ástralíu. Þau létu engan vita hvað stæði til, pökkuðu einfaldlega saman og fóru um miðja nótt. Síðar sögðu þau að ástæðan hefði verið að mamma Joels hefði dottið og slasast illa en Scott Cam lagði engan trúnað á það. Hann lét hafa eftir sér í fjölmiðlum að afsökun þeirra væri: „piss-pour“ og að það væri ekki í samræmi við þjóðarsál Ástrala almennt að gefast svo auðveldlega og lúalega upp. Svo mörg voru þau orð.

Allt virtist ganga Tom og Söruh-Jane í haginn þar til kom að uppboðinu.
Sama ár eða árð 2022 virtist allt ganga Tom og Söruh-Jane í haginn engu að síður seldist húsið þeirra á aðeins 20.000 dollurum hærra en ásett verð. Allir höfðu búist við meiru því bæði dómarar og áhorfendur voru mjög hrifnir af verkum þeirra. Það voru þeir Omar og Oz sem unnu það árið. Sarah-Jane sagði síðar frá því í viðtali að ágóðinn hafi ekki náð að dekka þann kostnað sem þau höfðu haft af því að taka þátt í þáttunum. Þau þurftu að selja bíl sem þau höfðu unnið meðan á þeim stóð til að ná að koma út á núlli.
Ljósmynd lekið til keppenda (2021): Áhorfendur urðu margir bæði hneykslaðir og reiðir þegar upp komst að einn keppenda, Tanya, játaði að hafa tekið mynd af byggingaáætluninni og fengið þannig forskot á hina því hún vissi alltaf hvaða herbergi yrðu tekin fyrir næst. Hún var sektuð og teknir af henni punktar á stigatöflunni. Þáttaröðinni lauk með að Darren og Deanne, og Michael og Carlene, fengu aðeins 10.000 dollara í sinn hlut eftir hafa lagt á sig gríðarlegt vinnuálag og þau kenndu uppboðshöldurum um. Þeir höfðu sérvalið inn á uppboðið og leyfðu ekki hverjum sem er að bjóða og pörin tvö vildu einnig meina að sú röð sem húsin voru boðin upp í hefði verið þeim mjög óhagstæð.
Árið 2020 voru Luke og Jasmin tvisvar sökuð um að svindla. Einn dómaranna, Shayna Blaze þekkti barnaherbergishönnunin þeirra og sýndi fram á að hún væri nánast eftirlíking af mynd á Instagram af verki annars innhússhönnuðar. Seinna fengu þau einnig orð í eyra þegar ljós kom að þau höfðu látið smíða fyrir sig trébekk sem var nánast nákvæm eftirlíking af bekk sem Daniel og Jade höfðu áður látið sérsmíða fyrir sig. Parið svarað ásökununum með því að segja að þau hefðu sótt innblástur í hönnun annarra.

Hús Jimmy og Tam var stórglæsilegt og allt stefndi í metgróða. Þá kom í ljós að kaupandi gat ekki staðið við tilboð sitt.
Tilboðið reyndist svik (2020): Jimmy og Tam unnu þessa þáttaröð að því er virtist og ef allt hefði verið með felldu hefðu þau fengið 1,06 milljónir Ástralíudala í sinn hlut en bjóðandinn stóð ekki við tilboðið. Kaupandinn hét Emese Fajk og átti hæsta tilboð í hús Jimmy og Tam eða 4.256 milljónir ástralíudala en gat ekki staðið við greiðslur. Hún kenndi um bankasvikum og skjalafalsi af hálfu bankans en ekkert slíkt sannaðist. Þetta allt fór mjög illa með Jimmy og Tam og úr varð að sjónvarpsstöðin gekk inn í tilboðið og keypti húsið og seldi það síðar fyrir mun lægri upphæð. Reynt var að grafast fyrir um fortíð Esme en ekkert fannst um þessa dularfullu persónu.
Árið 2014 földu bræðurnir Shannon og Simon síma stilltan á upptöku í húsinu sínu til að taka upp einkasamræður dómaranna og fá þannig að heyra hvað þeir segðu um þeirra hús og annarra. Darren Palmer, einn dómaranna fann tækið og þeir fengu lægri einkunn fyrir vikið. Sama ár gekk uppboðið mjög illa og tvenn pör fengu aðeins 10.000 dollara ágóða. Annað parið Darren og Deanne kom aftur í þáttinn ári síðar og þá náðu þau 935.000 dollara gróða.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







