Grillmatur er góður

Enn er eitthvað eftir af grillsumrinu og þá er um að gera að prófa eitthvað nýtt, reyna jafnvel einhverja rétti sem maður hefur aldrei prófað fyrr og aðferðir sem maður hefur ekki reynt.

Einföld og góð marinering

Best á kjúkling, svínakjöt eða lamb

200 ml sojasósa

100 ml hunang

4 hvítlauksrif rifin

2 cm rifin engiferrót

4 msk. olífuolía

Öllu blandað saman í skál. Þegar notuð er sojasósa þarf ekki að salta kjötið og Hrefnu finnst maríneringin ekki þurfa að liggja jafnlengi á kjötinu og ella væri ef til dæmis olía væri notuð sem grunnur.

Kartöflusalat með apríkósum

Þetta er ferskt og gott kartöflusalat og passar vel með nautakjöti eða lambakjöti.

Auglýsing

1 kg soðnar kartöflur
250 g þurrkaðar apríkósur, saxaðar
1 vænn rauðlaukur, skorin frekar smátt
u.þ.b. 3 msk. ólífuolía
maldonsalt
svartur grófmalaður pipar

Skerið kartöflurnar í bita, blandið apríkósum, rauðlauk, olíu, salti og pipar varlega saman við. Látið salatið standa í ísskáp í nokkra tíma, þess vegna yfir nótt.

 

Eplaeftirréttur á grillið

4 græn epli, afhýdd og skorin í báta

1 dl kókosmjöl

1 dl valhnetur, grófsaxaðar

2–3 msk. púðursykur

150 g Toblerone súkkulaði, grófsaxað

nokkrar smjörklípur

Afhýðið eplin og skerið í báta. Grillið eplabátana báðum megin í smástund. Leggið eplin því næst í álform eða á þykkan álpappír og brettið upp á kantana. Stráið púðursykri, kókosmjöli og hnetum yfir og bakið við vægan hita á grillinu eða látið á efri ristina og dreifið smjörklípum yfir. Fylgist vel með að eplin brenni ekki og þegar þau eru byrjuð að meyrna er söxuðu Toblerone súkkulaðinu stráð yfir. Bíðið þar til súkkulaðið bráðnar og berið réttinn fram strax með þeyttum rjóma eða ís.