Grillilmur í lofti er jafn öruggur vorboði og lóan sjálf og nú er þessi tími runninn upp. Þá er skemmtilegt að grilla hráefni sem við annars notum rafmagnstæki til að matbúa. Ein af þeim hugmyndum sem ég dusta rykið af á vorin er að grilla pítubrauð sem er ótrúlega gott að bjóða sem snakk í grillveislunni í staðinn fyrir kartöflusnakk úr pokum. Grilluð pítubrauð koma á óvart eldri sem yngri njóta.
Stökkt, kryddað pítubrauð
Pítubrauð
Tómat-chiliolía:
6 msk. ólífuolía
1 msk. tómatmauk
1 hvítlauksrif, smátt saxað
1 msk. ferskt timian eða óreganó, smátt saxað
1 tsk. þurrkað chili
1 tsk. nýmalaður svartur pipar
salt
Blandið öllu vel saman og látið standa um stund.
Rósmarín-hvítlauksolía:
6 msk. ólífuolía
2 hvítlauksrif, smátt söxuð
1 msk. ferskt rósmarín, smátt saxað
1 msk. ferskt timian, smátt saxað
1 tsk. nýmalaður svartur pipar
Blandið öllu vel saman og látið standa um stund.
Kljúfið pítubrauðin í tvennt. Penslið annan helminginn í sárið með tómat-chili olíunni og hinn helminginn með rósmarín-hvítlauksolíunni. Ristið pítubrauðin á meðalheitu grilli í 1-2 mínútur hvorum megin og byrjið þeim megin sem ópenslað er. Gott er að brjóta þau í minni bita og bera þannig fram sem snakk.







