Það hefur verið bið á að veður breytist og hlýni í lofti enda janúar rétt að renna sitt skeið. En þá er gott að útbúa staðgóða gúllassúpu og uppskriftin að þessari er skotheld. Í henni eru gúllasbitar úr ungnautagúllasi og fullt af hollu gænmeti og kryddin eru bragðsterk og góð svo rífur svolítið í.
Gúllassúpa fyrir fjóra
600 g smátt skorið ungnautagúllas
1 msk. olía og 1 msk. smjör
2-3 laukar, skornir í tvennt og svo sneiðar
1 chillialdin, fræhreinsað og skorið í sneiðar
Krydd: 1 tsk. paprikuduft, 1 tsk. timían, 1 tsk. cummin
2 msk. tómatpúrra
1 dós niðursoðnir tómatar
1 msk. hunang eða önnur sæta
½ – 1 l vatn – (fer eftir smekk)
2 teningar nautakraftur
1/2 sæt kartafla, skorin í teninga
1,5 dl rjómi
salt og pipar og fersk steinselja til að strá yfir í lokin
Steikið gúllasbitana í olíu og smjöri. Skerið laukinn og chilialdinið og setjið út á pönnuna með gúllasinu. Steikið við miðlungshita í nokkra stund. Setjið kryddið út á pönnuna og svo tómatpúrruna og veltið saman. Hellið niðursoðnu tómötunum út á pönnuna og hunangi.