Tómas Helgi Kristjánsson opnar frumlega sýningu á Borgarbókasafninu Spönginni föstudaginn 5. júní.
Næstkomandi föstudag opnar Tómas Helgi Kristjánsson sýningu á Borgarbókasafninu Spönginni undir yfirskriftinni Minningar af bakkanum.
Verkin á sýningunni eru byggð á raunverulegum útlínum íslenskra veiðiáa og vatnasvæða. Með einföldum línum og stílhreinni framsetningu eru form staðanna dregin fram á nýjan hátt, þar sem áherslan færist frá smáatriðum yfir í heild og tilfinningu. Hvert verk er þannig bæði staður og minning, tilraun til að fanga það sem margir tengja við en sjá sjaldan með þessum hætti. Verkin vísa í árnar sem við þekkjum, minningarnar sem verða til á bökkum þeirra og tilfinningarnar sem við berum gagnvart þeim. Þau minna á ósnortna náttúru og ábyrgð okkar gagnvart henni.
Minningar af bakkanum er fyrsta einkasýning Tómasar og markar upphaf á frekari þróun verkefnisins Veiðislóðar.
Sýningaropnun verður föstudaginn 5. júní kl 16:30.
Hluti af sölu verka á sýningunni rennur til Verndarsjóðs villtra laxastofna (NASF), en þess má geta að Tómas Helgi heldur úti vefsíðunnni veidislod.is, þar sem einnig má skoða verk eftir hann og panta.







