Á Borgarbókasafninu Spönginni stendur nú yfir áhugaverð sýning á verkum listakonunnar Dariya Tumanova undir yfirskriftinni Í ljóma liðinna tíma.
„Það hefur lengi verið draumur minn að halda sýningu á Íslandi og sjá hvernig íslenskir áhorfendur upplifa myndirnar mínar,“ segir listakonan Dariya Tumanova, sem hefur opnað sýninguna Í ljóma liðinna tíma á Borgarbókasafninu Spönginni.
Á sýningunni gefur að líta vatnslitamyndir af fornbílum, en listakonan kveðst vera heilluð af viðfangsefninu. „Mér finnst hver og einn þessara gömlu bíla hafa sinn eigin svip og sinn eigin persónuleika. Nútímabílar eru vissulega þægilegri en þeir líkjast hver öðrum svo mikið að ég á stundum erfitt með að finna minn eigin bíl á bílastæði,“ segir hún og hlær.
Dariya tekur fram að sýningin í Spönginni snúist þó ekki eingöngu um fornbíla heldur heldur um minningar, menningu og þann ljóma sem fortíðin getur enn varpað á daglegt líf okkar.
Dariya, sem er frá Úkraínu, hefur starfað sem myndlistarmaður og myndlistarkennari um árabil og sýnt verk í Úkraínu, Þýskalandi og á Ítalíu.
Í ljóma liðinna tíma er fyrsta sýning Dariya á Íslandi og segist hún vera glöð með bæði að geta unnið að listsköpun sinni hérlendis og deilt útkomunni með Íslendingum.
Sýningin stendur yfir til 28. ágúst.
Öll hjartanlega velkomin.







