Er enn dansað við Ufsaklett?

„Ég ætlaði að fá mín sambúð sama hvað …“ segir konan í kammeróperunni Ástin ein taugahrúga: Enginn dans við Ufsaklett. Og kannski er það stundum vandinn að ástin er ekki blind heldur ákveðum við að snúa að henni blinda auganu og ana áfram. Þessi frumlega og skemmtilega sýning er byggð á ljóðabók Elísabetar Jökulsdóttur og hún er höfundur textans en Anna Halldórsdóttir semur tónlistina.

Auglýsing

Þær Tinna Þorvalds Önnudóttir mezzósópran og Júlía Mogensen sellóleikari eru flytjendur eða kannski er réttara að segja leikendur í sýningunni því samspil þeirra er einstaklega frumlegt og vel útfært. Sellóið verður persóna í verkinu, ýmist viðfang ástarinnar, sjálfur ofbeldismaðurinn eða samúðarfullt eyra, vinkona eða innri rödd konunnar sem þráir ástina. Þótt kímni og stundum kaldhæðnislegur húmor einkenni margar senur eru hér áhrifarík og sterk augnablik sem sitja í áhorfandanum og hreyfa við honum.

Elísabetu tekst með hreinskiptni sinni og sterkri sjálfskoðun að lýsa þróun ofbeldissambands. Hvernig horft er framhjá öllum rauðum flöggum og hvernig ofbeldismaðurinn fylgir sínu mynstri samviskusamlega, það er nánast hægt að stilla klukkuna eftir honum. Hann kemur með sængina sína, nær fótfestu, skapar sér sess með nærveru og hlýju, leiðir ástina sína sem er alvörukona en svo fer að halla undan fæti. Öll smáatriðin verða stór og eru vörður á veginum út en það er bara svo erfitt að finna dyrnar og kannski voru engar dyr á bíóinu.

Tinna nær að túlka tilfinningasveiflurnar, sakleysið, hrekkleysið í byrjun, kannski barnlegt, kannski viljandi einfeldni, vaxandi kvíðann, óttann og að lokum átökin við að losna. Þegar honum hefur verið vísað út byrjar söknuðurinn og minningarnar um góðu stundirnar hellast yfir. Allt þetta verður svo skýrt og er undirstrikað af sellóinu, tónunum sem tala.

Frábær leikmynd og búningar Söru Hjördísar Blöndal mála svo myndina enn sterkari litum. Lítil íbúð einhleyprar konu en alls staðar hanga áminningar um allt það sem við tengjum við ást og rómantík, rauðar rósir, ástarljóð, híalín og brúðarslör. Allt sem konur dreymir um þegar þær vilja sína sambúð sama hvað. Juliette Louste tekst svo með magnaðri lýsingu að undirstrika tilfinningasveiflurnar og skerpa skilin milli draumsins og veruleikans. Ástin ein taugahrúga: Enginn dans við Ufsaklett er áhugaverð og eftirminnileg sýning og sviðslistahópurinn Spindrift á hrós skilið fyrir að ráðast í verkið og skila því jafn vel og raun ber vitni.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.