Kjósendur 60 ára og eldri eru 74.000

Landssamband eldri borgara vekur athygli á því að í fyrsta sinn er málefnum eldri borgara gerð skil í stefnumálum flestra stjórnmálaflokka fyrir alþingiskosningarnar 2021, og endurspeglar það aukið vægi og umræðu um kjör og aðbúnað eldra fólks í samfélaginu.

Landssambandið hefur gert samanburð á því hvernig áhersluatriði sambandsins ríma við stefnumál stjórnmálaflokkanna fyrir þessar kosningar, og inniheldur sá samanburður mjög fróðlegar upplýsingar fyrir alla kjósendur sem eru 60 ára og eldri, en þeir eru 74.000 talsins.

Það er forvitnilegt að skoða eftirfarandi töflu og Landssambandið hlakkar til að sjá loforðin verða að veruleika eftir næstu kosningar.

Ítarlegri upplýsinga eru aðgengilegar á vef LEB hér: https://www.leb.is/samanburdur-2021-leb/

Ritstjórn september 21, 2021 15:46