Þessi réttur er sérlega einfaldur og ljúffengur í undirbúningi og kemur á óvart. Grunnhráefnin eru fá en samsetning þeirra býr til óviðjafnanlegt bragð og má leika sér með því að bæta t.d. við ristuðum hetum eða grænmeti sem tekur í sig bragðið af kryddunum. Kóríanderkjúklingur er tilvalinn kennsluréttur fyrir þá sem vilja búa til sína eigin uppskriftir því grunnurinn stendur svo vel fyrir sínu.
Kóríanderkjúklingur
fyrir 4
1 knippi kóríanderlauf, söxuð
2-3 hvítlauksrif, söxuð
1 tsk. salt
2 tsk. nýmalaður, svartur pipar
2 msk. sítrónusafi
1 kg kjúklingabitar
2 msk. olía
1 dós kókosmjólk (400 ml)
Setjið kóríander, hvítlauk og salt í mortél og steytið þar til allt er orðð að mauki. Nota má matvinnsluvél eða blandara. Hrærið pipar og sítrónusafa saman vð. Smyrjið maukinu alls staðar á kjúklingabitana og látið í standa í 1 klst. Hitið olíuna á pönnu og brúnið kjúklinginn létt á báðum hliðum. Reynið að láta kóríandermaukið loða við kjötið. Hellið kókosmjólkinni út á pönnuna og látið malla í 35-40 mínútur. Hrærið afganginum af kóríandermaukinu saman við þegar 5 mínútur eru eftir af eldunartímanum. Berið t.d. fram með hrísgrjónum og ef til vill brauði sem gott er að dýfa í afgangssósuna á diskinum.