Ekki er langt síðan líkamsrækt snerist um að létta sig í hugum fólks og þegar kílóin voru fokin var talinn tími til að hvílast. Til allrar lukku vita flestir núorðið að það er ekki heppileg leið. Hæfileg hreyfing alla ævi varðveitir heilsuna. Ein vanmetnasta tegund líkamsræktar er hins vegar lyftingar. Nýjar rannsóknir sýna að allir hafa gott af því að lyfta lóðum en sérstaklega á það við um konur.
Upp úr þrítugu fer vöðvamassinn smátt og smátt að rýrna hjá flestum nema menn geri eitthvað sérstaklega til að halda honum við. Þótt likamsræktarsalir séu í hugum margra einna líkastir vonda staðnum og þeir vilji helst forðast þá eins og heitan eldinn er engu að síður skynsamlegt að komast sem fyrst yfir það hugarfar og heimsækja æfingasalinn reglulega í þeim tilgangi að lyfta lóðum.
Það hefur sýnt sig að þetta er skjótvirkasta og áhrifaríkasta leiðin til að viðhalda og byggja upp vöðva en styrkur þeirra er undirstaða góðrar brennslu og þreks. Lengi þótti ekki flott að konur væru vöðvastæltar en sterkar og flottar íþróttakonur á borð við Annie Mist, Katrínu Tönju, Ragnheiði Söru og Serenu Williams eru ört að breyta því. Hugsanlega eiga einnig hlut að máli ofurhetjumyndir þar sem konur berjast hatrammlega við ofurefli og gefa ekkert eftir. En hver svo sem ástæðan er hefur áhugi kvenna að láta reyna á þolmörk líkama síns og byggja styrk hans upp aukist til mikilla muna. Þær vilja komast að því hversu þungu þær geta lyft og hve sterkar þær geta orðið.
Viðhalda þrekinu
Sú skoðun að konur eigi að vera litlar og fíngerðar með mjúkar línur er á undanhaldi og það þykir fallegt að skarta breiðum öxlum og stórum upphandleggsvöðvum hvaða kyni sem menn tilheyra. En ekki allir vilja verða afreksfólk í íþróttum, flestum nægir að vera nógu sterkir til að geta allt það sem þá langar til, hvort sem hugurinn stendur til þess að ganga á Esjuna, hjóla hringinn í kringum landið, renna sér á skíðum eða fara golfhring. Það er auðvelt að missa styrk, bara nokkurra vikna andvaraleysi getur skilað sér minnkandi getu og úthaldi.
Lyfingar eru þá góður valkostur og eitt af því sem gerir þær skemmtilegar er að menn fara fljótt að geta bætt við sig meiri þyngdum. Það verður einnig stöðugt meira spennandi að sjá hversu mikið menn geta. Sumir segja einnig að hægt sé að fá meiri útrás og aukna þægindatilfinningu í líkamann með því að takast á við lóðin í byrjun og lok hverrar æfingar. Þær hafa einnig þann kost að ekki borgar sig að vera lengi að í einu. Þetta eru skorpuæfingar, fljótt búnar, fjölbreyttar og oft skemmtilegar.
Nýjar rannsóknir hafa sýnt að lyftingar og vinna með lóð eykur framleiðslu vellíðunarboðefna í líkamanum hraðar en aðrar æfingar. Eftir stutta stund finna menn notalega þreytutilfinningu streyma um vöðvana. Þeir styrkjast og vaxa og um leið og vöðvamassinn eykst, verður brennslan í líkamanum hraðari og þá fækkar kílóunum. Það er einnig hægt að móta líkamann með lóðunum. Vöðvarnir verða lengri, sterkari og sjást betur. Ef einhver hefur áhuga á að fá betur formaða upphandleggi, magavöðva eða fótleggi eru lóðin léttasta leiðin til þess.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







