Líf á jörðinni með augum Sir Davids Attenborough

Fáir ef nokkrir núlifandi einstaklingar hafa haft jafnmikil áhrif út um allan heim og Sir David Attenborough. Hann hefur verið óþreytandi að vekja athygli okkar á fjölbreytileika lífsins á jörðinni, hversu heillandi heimur jurta og dýra er og reynt að kveikja í hjörtum áhorfenda sinni sömu ástríðu og hann hefur sjálfur fyrir að varðveita og ganga vel um þessa plánetu sem okkur er trúað fyrir. Sagt er að enginn sé ómissandi en stundum veltir maður fyrir sér hvort það eigi við um alla og Sir David Attenborough. Nú er komin út á íslensku bókin Líf á jörðinni okkar, vitnisburður og framtíðarsýn eftir hann en það er frábærlega vel skrifuð og áhugaverð úttekt á stöðu mála í dag og hvað við getum gert til að bæta úr.

Bókin kom fyrst út í Bretlandi árið 2020 og það er verðug leið til að fagna 99 aldursári þessa snillings að gefa hana út í þýðingu Magnúsar Þórs Hafsteinssonar. Margir Íslendingar sáu myndina Hafið sem sýnd var í Smárabíó í byrjun maí en þar kafar David ofan í djúpin og sýnir okkur hvernig hafið, uppspretta lífs á jörðinni, er að verða sífellt mengaðra og hvernig mennirnir hafa leikið vistkerfi þess grátt. Leikstjóri myndarinnar Toby Nowlan var viðstaddur frumsýninguna hér á landi og sagði að David hefði stöðugt komið sér á óvart meðan á tökunum stóð því hann væri svo orkumikill og vakandi fyrir öllu stóru og smáu við vinnuna.

Sir David Attenborough fæddist í London 8. maí 1926 og ólst upp í Leicester. Pabbi hans var rektor háskólans í Leicester en David menntaði sig í líffræði og náttúrusögu í Clare College í Cambridge. Hann útskrifaðist með meistaragráðu árið 1947 og byrjaði að vinna hjá útgáfufyrirtæki sem einbeitti sér að útgáfu námsbóka. Árið 1952 fóru hann og eldri bróðir hans Richard í gegnum þjálfunarprófgramm hjá BBC og þar með var ferill Davids sem sjónvarpsmanns hafinn. Richard einbeitti sér hins vegar að leik og kvikmyndaframleiðslu.

Stóra kóralrifið innblástur

Árið 1954 tók David höndum saman við, Jack Lester, safnvörð í skriðdýrahúsi dýragarðsins í London og þeir gerðu saman þættina Zoo Quest. Þar sýndu þeir bæði villt dýr og dýr í dýragörðum. Þetta var í fyrsta sinn sem farið var með myndavélar út í náttúruna og teknar myndir af skriðdýrum í sínu náttúrulega umhverfi. Þættirnir slógu í gegn en segja má að þeir hafi lagt grunninn að því sem David hefur gert síðan. Hann átti farsælan feril innan BBC en hætti þar árið 1972 og hóf að framleiða náttúrulífsmyndir upp á eigin spýtur og allir geta verið sammála um að enginn gerir það betur en hann.

Það var svo kvikmynd sem hann gerði um Stóra kóralrifið í Ástralíu árið 1957 sem varð innblástur að kvikmyndinni Hafið. Hann var aðeins um þrítugt þegar hann synti með fiskunum umhverfis kórallanna en það er sláandi hve mikil eyðilegging hefur átt sér stað á þessum slóðum síðan og hvað tegundafjölbreytnin er miklu minni en var. Þess vegna taldi hann að einmitt kóralrifið væri góð leið til að opna augu heimsins fyrir hættunni sem steðjar að höfunum.

Aldrei verið mikilvægara að segja þessar sögur og nú

Þrátt fyrir það er Sir David bjartsýnn bæði í bókinni Líf á jörðinni okkar og í kvikmyndinni Hafinu. Hann bendir á hæfni náttúrunnar til að endurnýja sig, laga það sem aflaga hefur farið og lækna eigin mein. Ef við mennirnir sjáum að okkur og förum að umgangast jörðina af meiri virðingu er von til þess að við náum að snúa við þeirri hræðilegu þróun sem verið hefur síðastliðin sjötíu ár. Það eru til lausnir og það sem meira er margar þeirra eru líklegar til að bæta líf okkar og heilsu.

En Sir David er ótrúlega ern miðað við aldur og sívinnandi. Aðspurður hvers vegna hann kjósi að vinna áfram þótt hann sé löngu kominn á eftirlaunaaldur svaraði hann: „Ef ég tek skref til baka og horfi yfir sviðið sé ég að aldrei hefur verið mikilvægara en nú að segja sögur af þessu tagi. Mörg samfélög hafa aldrei áður verið jafn fjarlæg náttúrunni, meira úr takti við hana og breytingar hennar. Það hefur fært okkur margs konar hlunnindi, auðvitað, en það þýðir líkaað við tökum ekki eins vel eftir breytingunum sem verða á veröld okkar eða skynjum þær eins skýrt og við ættum að gera.“

Þegar Sir David Attenborough talar ættu allir að hlusta og bók hans Líf á jörðinni okkar, vitnisburður og framtíðarsýn er holl lesning fyrir alla.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Ritstjórn júní 11, 2025 07:00