Hvergi er íslenskur menningararfur í jafnmiklum hávegum hafður og meðal Vestur-Íslendinga. Afkomendur fólks er héðan hélt seint á nítjándu öld og í byrjun þeirrar tuttugustu hefur sterkar taugar til gamla landsins og Sunna Ólafson Furstenau er án efa einn ötulast og ástríðufyllsti fræðari, verndari og skapari íslenskar menningar í Vesturheimi og mikilvægur tengiliður fólks þar við Ísland. Hún er stofnandi og forseti samtakanna Icelandic Roots en það er samfélag fólks sem tengist til að fræðast, upplifa og skapa nánd við rætur sínar. Samtökin standa fyrir margháttuðu starfi sem enn mun víkka út þegar nýtt menningarsetur Rootshús rís í bænum Mountain í Norður-Dakóta.
Sunna fjármagnar byggingu hússins að miklu leyti og hefur lyft grettistaki í að finna því stað. En hvers vegna fannst henni að fólk af íslenskum uppruna þyrfti hús til að hittast í, fræðast og næra rætur sínar?
„Þetta byrjaði allt fyrir átta árum þegar mér voru færðir margir kassar af íslenskum bókum,“ segir hún. „Bókasafnsfræðingur búsettur í Chicago var að flytja aftur heim til Washington en þar sem hann átti enga lögerfingja og var einbirni vissi hann ekki hvað hann ætti að gera við bókasafnið sitt. Hann átti dásamlegt safn bóka og var orðinn heilsuveill. Hann bauð bókasöfnum í Bandaríkjunum og Kanada safnið en enginn vildi taka við því. Að lokum benti vinkona mín í Washington honum á mig og úr varð að hann hringdi í mig.
Icelandic Roots er félag sem ekki er rekið í hagnaðarskyni og þess vegna geta skattgreiðendur í Bandaríkjunum styrkt það og fengið skattafslátt á móti. Hann gaf okkur því þessa stóru gjöf sem samanstóð af tuttugu átta kössum af gömlum bókum, öllum í fullkomnu standi. Nefna má að þarna voru nokkur eintök af Biblíunni, meðal annars Guðbrandsbiblía frá 1858 en þá gaf íslenska ríkið hana út í 500 eintökum, sálmabækur og margar fleiri dásamlegar bækur. Þetta var fyrsti stóri styrkurinn sem við fengum. Margir höfðu áður fært okkur bækur á íslensku úr eigu ættingja sinna, ýmist vegna þess að viðkomandi stóð í flutningum eða þetta var eitthvað sem enginn gat lengur lesið. Bækurnar höfðu safnast upp og í átta ár hafði ég leitað að stað til byggja bóksafn undir þær.“

Rootshús eins og það mun líta út fullgert.
Lærði að gera við gamlar bækur
Sunna lagði hart að sér til að varðveita allar þessar gjafir. Sumar bókanna voru myglaðar og hún setti þær í frystinn tók þær síðan út og burstaði af þeim verstu mygluna, setti þær aftur í frysti og hélt þannig áfram þar til bókin var hæf til að gera við hana. Með þessu móti lærði hún varðveislu gamalla bóka. En það er stórt skref að stíga frá því að taka bækur upp úr kössum yfir í að byggja hús.
„Fyrir um það bil fimm árum höfðu systkini frá New York samband við mig og sögðu mér að foreldrar þeirra hefðu elskað Ísland. Þau voru hvorugt af íslenskum uppruna en hann hét Michael Fell og var prófessor í stærðfræði. Hjónin höfðu keypt hús á Íslandi og hann lært íslensku í Háskólanum. Hann hafði meira að segja þýtt nokkrar íslenskar bækur á ensku þar á meðal Eldrit Jóns Steingrímssonar. Frá þeim komu þrjátíu kassar af bókum og það varð því stöðugt mikilvægara að finna öllum þessum bókum öruggt skjól. Ég gat ekki hugsað mér að gefa þær bókasöfnum sem myndu henda stórum hluta þeirra.
Mig hefur líka alltaf langað að fræða meira um Ísland og íslenska menningu. Ég bjó til söguskilti (storyboard panels) á árunum 2003-2007 og kom fyrir í Thingvalla en kirkjan þar brann til kaldra kola árið 2003 en í kirkjugarðinum þar var skáldið Káinn grafinn. Við sögðum þar sögu kirkjunnar en ég vildi gera meira og í Norður-Dakóta er the Icelandic State Park. Mér fannst garðurinn fullkominn staður fyrir bókasafnið mitt og árum saman vann ég að því með stjórn garðsins að finna lóð. Meðlimir stjórnarinnar sögðust vilja byggja safnið en þetta dróst og dróst. Að lokum gafst ég upp.
Svo vill til að frændi minn á töluvert land í nágrenni Garda og hann vildi gefa mér en við urðum sammála um að betri staðsetning væri í Mountain, annarri Íslendingabyggð þar sem the Board Memorial Nursing Home er og Víkurkirkja. Hann ráðlagði mér að vinna að því að fá lóð þar og það varð úr. Æskuvinkona mín, Laurie Byron Cameron, ákvað að gefa Icelandic Roots landið undir bókasafnið.“

Grindin er komin upp og byggingin gengur vel.
Hin fullkomna staðsetning fundin
Og þá var engin fyrirstaða lengur. Gardar er einn helsti og stærsti bær Íslendingabyggðarinnar í Norður-Dakota og Sunna býr á búgarði sem heitir Óðinssæti þar rétt hjá. Í Mountain er sömuleiðis að finna ótal afkomendur Íslendinga og þar er árlega haldin Íslendingahátíðin August the Deuce en í ár var hún haldin í hundrað tuttugasta og sjöunda sinn. En hugsjónakonu eins og Sunnu nægir ekki að byggja yfir bækur. Hugmyndin óx og Rootshús verður annað og meira.
„Lóðin sem ég fékk er í landi séra Páls Þorlákssonar, föður íslensku byggðarinnar í Dakóta, manninum sem leiddi fyrstu stóru hópana af íslenskum landnemum til svæðisins. Húsið mun standa beint á móti Víkurkirkju og þar í kirkjugarðinum eru afi minn og amma frá Eyjafirði grafin. Þar var the Board Memorial Nursing Home fyrir aldraða Íslendinga reist á fimmta áratug síðustu aldar og hornsteininn að því lagði langafi minn frá Skagafirði. Í ár eru hundrað fjörutíu og níu ár frá því landnemabyggðin hófst þarna. Þetta er hinn fullkomni staður og við munum opna á næsta ári á hundrað og fimmtíu ára afmælinu.

Víkurkirkja sem er hinum megin við götuna frá Rootshúsi.
Fyrsta skóflustunga var tekin 1. ágúst og þegar ég fór voru fyrstu styrktarstoðirnar að rísa upp úr grunninum. Ég veit að byggingin er í góðum höndum. Maðurinn minn er verkfræðingur og byggingaverktaki og hann sér um að hanna og reisa húsið. Upphaflega teikningin var um 100 m2 en í stað þess að byggja lítið bókasafn ákváðum við að byggja 420 m2 hús. Rootshhús verður menningarsetur, safn, fræðasetur og samkomustaður. Í litla bænum Mountain er þegar fyrir samkomuhús örstutt frá þeim stað þar sem Rootshús rís. Við þurftum því ekki að byggja stóran fundarsal en einn lítill, the Saga Hall, er í húsinu. Ég vildi að þetta líktist meira heimili en samkomuhúsi. Bækurnar hér, staðir þar sem hægt er að setjast niður, barnahorn með bókum fyrir börn, kaffistofa með uppskriftabókunum og saga innflytjendanna, The Immigration Trail, sögð á göngu í gegnum s-laga sal og herbergi þar sem hægt er að horfa á heimildamynd Cathy Josephson, Sails, Rails, Rivers and Trails. Allt þetta verður mögulegt og meira til. Svo verður gjafabúð þar sem við seljum bækur, lopapeysur, vettlinga, húfur og íslenskt sælgæti og auðvitað hjálma og sverð fyrir börnin.“

Hópurinn sem stendur að baki Icelandic Roots vefnum en það er lifandi samfélag fólks sem vill rækta rætur sínar og íslenskan menningararf.
Lifandi samfélag á netinu og í Rootshúsi
Rootshús verður sem sagt lifandi safn, ekki hús utan um dauða hluti heldur staður þar sem áhugasamir geta komið saman, fræðst, skipst á hugmyndum og þekkingu, aflað sér fróðleiks og umfram allt notið. Þetta minnir um margt á samfélagið Icelandic Roots á netinu. Þar eru vinnustofur, námskeiða, hópar tileinkaðir margskonar þáttum eða greinum íslensku rótanna. Þar er líka ættfræðivefur byggður á sama grunni og Íslendingabók en mun viðameiri. Þar er gríðarlegt safn ljósmynda en Sunna og samstarfsmenn hennar hafa lagt mikla vinnu í að finna myndir af fólkinu sem héðan fór, bæjunum sem það var frá, stöðunum sem það lagði upp frá, skipunum sem það fór með og sögum af því hvers vegna það fór og hvernig því reiddi af. Sumar eru sorglegar, aðrar uppbyggilegar og endurspegla þrautseigju og dugnað. Eitt er hins vegar víst að engin er einföld. Aðstæður þeirra 17000 manna er héðan fóru voru margvíslegar og misjafnar og afkomendur þeirra bera vitni um fjölbreytta hæfileika og hæfni. Allir geta tekið þátt í þessu samfélagi, Íslendingar búsettir á Íslandi jafnt sem í Bandaríkjunum. Það er bara að skrá sig á netinu og borga árgjaldið.
„Ég hef verið að vinna við að gera ættartöl fyrir fólk frá árinu 2000 og á August the Deauce, Íslendingahátíðin í Norður-Dakóta, komu til mín einstaklingar og báðu mig að finna forfeður sína sem farið höfðu yfir hafið á nítjundu öld og í byrjun þeirrar tuttugustu. Ég bað fólk einnig að hafa samband við mig fyrir hátíðina svo ég gæti lagst í rannsóknir fyrirfram og náð að tengja saman gesti á hátíðinni,“ segir Sunna en hún er óþreytandi við að rækta sína ættingja hér á landi og kemur árlega til Íslands.
Að lokum er vert að geta þess að Sunnu var ekki gefið það nafn í skírninni. Hún hlaut þar nafnið Pam en vinur hennar í Icelandic Roots, Nelson Gerard, ákvað að hún yrði að bera íslenskt nafn. Hann svaf á hugmyndinni eina nótt og kom svo daginn eftir og sagði Pam að héðan í frá héti hún Sunna. Svo skemmtilega vildi til að gælunafn eiginmanns Sunnu fyrir hana var einmitt Sunshine. Og Sunna hæfir þessari brosmildu, framkvæmdaglöðu og jákvæðu konu einstaklega vel.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







