Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins er látinn 78 ára að aldri. Davíð setti óumdeilanlega mark sitt á íslenskt samfélag bæði sem stjórnmálamaður, seðlabankastjóri á umbrotatímum í efnahagslífinu og sem texta- og rithöfundur.
Davíð lést á heimili sínu í Skerjafirði í gær en hann fæddist 17. janúar 1948 í Reykjavík. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík þar sem hann var áberandi í félagslífinu og gengdi meðal annars embætti, inspector scholae í sjötta bekk, lék með Herranótt í vinsælli sýningu á Bubba kóng eftir Alfred Jarry og myndaði vináttu við þá Hrafn Gunnlaugsson og Þórarinn Eldjárn en þeir sáu á háskólaárunum um útvarpsþáttinn, Útvarp Matthildi í Ríkisútvarpinu sem margir muna enn.
Davíð lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands. Hann var sjálfstæðismaður og hafði tekið þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins frá unga aldri. Hann settist á framboðslista í bæjarstjórnarkosningum árið 1974 og náði kjöri í borgarstjórn. Hann varð borgarstjóri í Reykjavík árið 1982 og var mjög umdeildur meðan hann gengdi því embætti. Meðal þess er vakti deilur í borginni voru ákvarðanir um að byggja Perluna ofan á hitaveitutankana í Öskjuhlíð og bygging ráðhússins í Tjörninni. Davíð lét af embætti borgarstjóra árið 1991 og fór þá í framboð til Alþingis.
Hann bauð sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins árið 1991 og hafði sigur. Sama ár varð hann forsætisráðherra en Davíð átti eftir að gegna því embætti í þrettán ár og verða sá maður er lengst hefur gengt því embætti í sögu lýðveldisins. Þegar hann hætti í því embætti tók hann við starfi seðlabankastjóra árið 2005 og gegndi því starfi þar til ný lög um Seðlabanka Íslands tóku gildi árið 2009 í kjölfar efnahagshrunsins. Miklir umbrotatímar voru í íslensku samfélagi á þessum árum og Davíð fór ekki varhluta af því. Mótmæli voru ekki bara á Austurvelli heldur einnig fyrir utan seðlabankann og krafist var afsagnar Davíðs. Hann hætti störfum og það kom mörgum á óvart þegar hann tók við starfi ritstjóra Morgunblaðsins ásamt Haraldi Johannessen. Hann hefur gengt því starfi síðan og var elsti maður til að gegna því starfi.
Davíð var einnig rithöfundur og sendi frá sér bæði smásögur og skáldsögur og gerði dægurlagatexta. Hann var einnig kunnur orðheppni þótt sumir hafi ekki kunnað að meta kímnigáfu hans. Davíð lætur eftir sig eiginkonu, Ástríði Thorarensen og soninn Þorstein Davíðsson héraðsdómara.







