Met slegið í forsölu miða á Moulin Rouge

Líklega kemur það fáum á óvart sem sáu og elskuðu kvikmynd Baz Luhrman, Moulin Rouge!, að forsala miða á söngleikinn hefur slegið öll met. Sýningin verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu 27. september næstkomandi. Þetta er hádramatísk saga byggð á óperunni La Traviata sem aftur var byggð á skáldsögu Alexander Dumas yngri Kamelíufrúnni. Gleðikonan Violetta verður ástfangin af Alfredo og hann af henni. Mörg ljón eru þó vegi ástar þeirra og eitt það stærsta faðir Alfredos, stéttamunurinn á milli þeirra vegur einnig þungt en að lokum verða það veikindi Violettu sem aðskilj þau.

Einvala lið leikara leikur í Moulin Rouge! söngleiknum sem verður frumsýndur í Borgarleikhúsinu í haust. .

Samkvæmt fréttatilkynningu frá Borgarleikhúsinu hefur aldrei áður verið seldur jafn mikill fjöldi miða á fyrstu klukkustundum forsölu í leikhúsinu og mikið álag skapaðist á miðasölukerfi hússins.

„Við erum í skýjunum yfir þessum ótrúlegu viðtökum og þakklát fyrir þann gríðarlega áhuga sem sýningin hefur vakið“ segir Egill Heiðar Pálsson Borgarleikhússtjóri, „Það er ljóst að Moulin Rouge! söngleikurinn heillar og við hlökkum til að deila þessari stórbrotnu sýningu með gestum Borgarleikhússins.“

Vegna þessarar miklu eftirspurnar hefur verið ákveðið að framlengja forsöluna um einn dag, til miðnættis fimmtudaginn 1. maí.

Forsala heldur áfram á https://www.borgarleikhus.is/syningar/moulin-rouge-soengleikurinn og í miðasölu Borgarleikhússins.

Um Moulin Rouge! Söngleikinn

Moulin Rouge! söngleikurinn gerist í París árið 1899. Söngvaskáldið Christian kemur til borgarinnar í leit að innblæstri og er tekið opnum örmum af bóhemum Montmatre sem vinna að söngleik sem þá dreymir um að verði settur upp í Rauðu Myllunni. Skáldið unga slæst í lið með þeim en verður ástfanginn af stjörnu Myllunar – hinni óviðjafnanlegu Satine.

Þessi munu dansa í sýningunni.

Brynhildur Guðjónsdóttir leikstýrir uppfærslu Borgarleikhússins en með burðarhlutverk þeirra Satine og Christian fara þau Hildur Vala Baldursdóttir og Mikael Kaaber. Í aðalhlutverkum eru einnig Halldór Gylfason sem Zidler, Björn Stefánsson sem Toulouse-Lautrec, Valur Freyr Einarsson sem hertoginn og Haraldur Ari Stefánsson sem Santiago. Með önnur hlutverk fara Íris Tanja Flygenring, Margrét Eir Hönnudóttir, Esther Talía Casey og Pétur Ernir Svavarsson.

Danshlutverk skipa þau Anaïs Barthe Leite, Birna Karlsdóttir, Björn Dagur Bjarnason, Ernesto Camilo Valdes, Fanný Lísa Hevesi, Gabriel Marling Rideout, Hannes Þór Egilsson, Karen Sif Kamgan, Karitas Lotta Tulinius, Marinó Máni Mabazza, Rúnar Bjarnason, Þórey Birgisdóttir og Margrét Hörn Jóhannsdóttir.

Ritstjórn maí 1, 2025 07:00