Kostnaður almannatrygginga vegna lífeyris aldraðra mun lækka á næstu árum, að óbreyttum reglum. Þetta segir Benedikt Jóhannesson, tryggingastærðfræðingur og fyrrverandi fjármálaráðherra, í grein í nýjasta tölublaði Vísbendingar, vikurits um viðskipti og efnahagsmál.
Samkvæmt samantekt Kjarnans segir Benedikt í greininni að oft sé talað um að hluti af velferðarbyrðinni svonefndu sé bæði kostnaður við eftirlaun og umönnun aldraðra. Í því samhengi gleymist þó oft að líta á skattana sem aldraðir greiði, en þannig standi þeir undir hluta af samfélagskostnaðinum.
Skattgreiðslur aldraðra aukist umfram fólksfjölgun
Útreikningar Benedikts, sem byggja á skýrslu Talnakönnunar um lífeyriskerfið fyrir Birtu lífeyrissjóð, sýna að skattgreiðslur aldraðra hafi aukist umfram fólksfjölgun á síðustu árum. Þær munu nú vera tæplega fimmtán prósent af heildarskattgreiðslum, en alls eru 16 prósent íbúa landsins á ellilífeyrisaldri. Til samanburðar borguðu aldraðir aðeins átta prósent af heildarskatttekjum árið 2005, þrátt fyrir að hafa verið 14 prósent af mannfjöldanum þá.
Í framtíðinni býst Benedikt svo við að skattgreiðslur aldraðra muni aukast enn frekar, samhliða hækkandi lífeyristekjum þeirra. Því til stuðnings bendir hann á spá Talnakönnunar um hlutfall eftirlauna af launum landsmanna á næstu árum, en samkvæmt henni mun það vaxa hraðar en hlutfall aldraðra af íbúum landsins. Með þessu lækkar kostnaður almannatrygginga vegna lífeyris aldraðra, að óbreyttum reglum.
Benedikt segir þetta sýna tvennt: „Annars vegar að lífeyrisgreiðslur eru orðnar mun meiri en áður var, en jafnframt að aldraðir hafa með lífeyrissparnaði lagt fram sinn skerf til þjóðarbúsins og rangt að telja þá byrði á samfélaginu þegar allt er talið með.“
Afnám tekjutenginga kosti TR 100 milljarða
Benedikt fer einnig yfir fyrri útreikninga sína sem sýndu að fullt afnám tekjutengingar lífeyrisgreiðslna myndi kosta Tryggingastofnun ríkisins (TR) um 100 milljarða króna. Hann segir töluna sennilega vera nær 105 milljörðum króna ef allir þeir sem eru með lífeyrisréttindi fengju fullan lífeyri frá TR og að 35 prósent þeirra fengju fulla heimilisuppbót. Benedikt tekur þó fram að þessir útreikningar séu ekki nákvæmir. Aftur á móti ættu þeir að gefa nokkra mynd af hugsanlegum kostnaði Tryggingastofnunar vegna þessa. Ekki mætti þó gleyma að hluti fjárhæðarinnar færi aftur til ríkisins í formi tekjuskatta.